laugardagur, september 22, 2007

Skemmtilegur dagur í London


Á fimmtudeginum vorum við feðgar aftur á ferð til London. Nú er það alvaran því Stefán er að taka fimm próf í tveimur lotum til að standast GED prófið sem jafngildir amerískum "High School". Prófin eru á föstudag og mánudag. Við komum seint á fimmtudagskvöld og rétt náðum að ganga niður á Leicester Square og fá okkur bita fyrir nóttina. Föstudagurinn varð skemmtilegri en ætlað var fyrir þrennar sakir. Í fyrsta lagi náði Stefán 54 stigum í fyrsta prófinu, þannig að hann er ennþá yfir lágmarkinu fyrir Wichita. Hitt prófið fær hann ekki einkunn fyrir fyrr en síðar því það þarf að lesa ritgerðina hans yfir. Í öðru lagi drifum við okkur eftir prófið á söngleikinn "Spamalot" sem er afrakstur Monty Python hópsins og byggir á myndinni "The Holy Grail". Virkilega góð skemmtun og ekki spillti fyrir að við fengum sæti á fjórða bekk við gang fyrir miðju. Síðan enduðum við kvöldið á myndinni "I now pronounce you Chuck and Larry" sem var líka fyndin. Á milli atburða náðum við að fá okkur rif á mexíkóskum veitingastað, virkilega góðum. Það voru því þreyttir og ánægðir feðgar sem gengu til hvílu í nýju herbergi því ég er orðinn eins og Sigrún og skipti um herbergi því það var svo mikill viftuhávaði í fyrsta herberginu. Nú er bara að vona að Stefán spýtí í lófana og læri vel um helgina.

1 Comments:

At fimmtudagur, 27 september, 2007, Blogger Dis said...

Thid fedgar kunnid sko ad hafa ofan af fyrir ykkur. Frabært hvad Stefani gekk vel.
love
Asdis

 

Skrifa ummæli

<< Home