þriðjudagur, október 02, 2007

Samstarfssamningur SUT og IAC


Erindið í Glasgow var að fara á fundi ýmis konar á þriðjudag og miðvikudag og þar á meðal var að skrifa undir viljayfirlýsingu um samstarf á milli SUT (Samtaka íslenskra upplýsingatæknifyrirtækja) og Skosku þekkingarverðmætamiðstöðvarinnar. Tímasetningingu á undirskriftina valdi ég því að á fimmtudag og föstudag var alþjóðleg ráðstefna hjá þekkingar-verðmætamiðstöðinni. Þar hitti ég gamla félaga í þekkingarbransanum eins og Leif Edvinsson, sem ég hitti síðast í afmælinu hans Göran Roos í Svíþjóð, og svo Guivanni Schiuma frá Ítaliu, sem ég lofaði að ég myndi koma á ráðstefnuna hans á næsta ári. Ráðstefnan var ósköp rislítil og í sjálfu sér ekkert nýtt sem kom fram, en auðvitað alltaf nauðsynlegt fyrir hagsmunaaðila að hittast, ekki hvað síst í kvöldverðinum sem var haldinn í vísindamiðstöðinni sem er mikil bygging. Þar sat ég með Donal frá Gael Software og spjölluðum við mikið saman. Á fimmtudeginum náði ég líka að funda með David Grahame í LINC, skosku englasamtökunum, sem bauð mér að vera fulltrúi LINC á ráðstefnu WIPO í Genf í nóvember og tala um mikilvægi þekkingarverðmæta þegar verið er að finna fjármagn í litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Síðan var farið yfir VIA verkefnið á föstudeginum og ég fór eftir hádegismatinn út á flugvöll þar sem ég hitti Sigrúnu. Við flugum með Easyjet til Stansted þar sem við stóðum í biðröð í klukkutíma til að tékka okkur inn í flug til Osló, héldum okkur vera orðin of sein, en þá var auðvitað eins og hálfs tíma seinkun!!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home