sunnudagur, október 07, 2007

Áfram á faraldsfæti

Mánudagurinn eftir maraþonið var Capital Markets Day í Osló hjá Glitni. Þar sem Sigrún var að sjá um þetta, bauð hún mér að fylgjast með. Ég hitti þarna nokkra sem ég þekkti og því átti ég góðan dag. Ég sat í hádegismatnum með Elvari, syni Ástrúnar og Mumma, en hann vinnur hjá Saga Capital. Um kvöldið var boðið á flottan veitingastað þar sem útsýni var yfir Osló. Þar sat ég með Kristjáni frá Nordic e-Marketing, sem ég hitti þarna fyrir tilviljun, en ég er að skoða að fjárfesta í þeim. Síðan voru það tíðindi kvöldsins þegar okkur Sigrúnu var boðið að heimsækja heiðurshjónin Róbert og Áslaugu til Suður-Afríku í febrúar. Það verður spennandi að sjá hvort við náum að þekkjast boðið.

Þriðjudagurinn var ferðadagur þar sem ég flaug með Norwegian til Edinborgar. Mér varð ekki um sel þegar ég kom út á flugvöll og sá biðröðina og hélt að leikurinn frá föstudeginum væri að endurtaka sig. Sem betur fer voru sjálfsafgreiðsluvélar og ég bara með handfarangur svo þetta fór allt vel. Ég hitti svo Róbert á vellinum en hann var að fara til London. Við ákváðum að vera í sambandi og héldum hvor sína leið. Þegar kom til Edinborgar var sól og gott veður. Ég var kominn á hádegi en herbergið ekki til fyrr en tvö, svo ég fór og verslaði mér bók, fékk mér hádegismat og settist síðan á bekk fyrir framan kastalann og las. Þá hringdi Snorri í EJS og minnti mig á að þeir voru að taka þátt í sýningu á Murryfield Rugby Stadium og fór ég þangað upp úr hálf fjögur. Ég var síðan kominn aftur á hótelið um kvöldmat og fór á Frankie og Benny’s og fékk mér aftur rif og var kominn snemma í rúmið. Á miðvikudeginum var ég kominn á fund hjá lögfræðingum vegna Amivox samningsins kl. 9 og var alveg til hádegis. Eftir léttan hádegismat og smá rölt í bænum var tími til að halda á næsta fund kl. 16 þar sem ég hitti Kathleen Greenwood, sem var að kynna fyrir mér Seed Fund sem fjármagnar klak upp að 100.000 pundum. Kl. 19 tók ég svo bíl að Signet Library á Parliament Square þar sem var hátíðarkvöldverður Scottish Co-Investment Fund þar sem voru samstarfsaðilar sjóðsins, en ég er einn slíkur. Þarna hitti ég David Grahame frá LINC, Andreu og Andrew frá SCF og svo var gaman að hitta Mark frá Sigma Capital, en við urðum ágætis mátar í Scottish Tech Tour sem ég tók þátt í fyrra. Sessunautar mínir voru Susie og áðurnefndur Andrew og spjölluðum við heilmikið og þetta var ánægjulegasta kvöld.

Dagskrá fimmtudagsins byrjaði í Glasgow á stjórnarfundi hjá EJS. Ég fékk SMS um morguninn frá Gústa þar sem hann lét mig vita af seinkun svo ég var ekkert að flýta mér. Það var svolítið skondið að þegar lestin var að renna inn á Queen Street stöðina voru tvær vinkonur að koma sér að dyrunum með ferðatöskur. Heyrði ég þær tala íslensku og eftir að hafa hlustað á þær smá stund sagði ég stundarhátt, “Þetta er lítill heimur” og brá þeim heldur. Þær voru á leið heim til Íslands og þegar ég sagði þeim frá seinkuninni þá fannst þeim fyndið að ég vissi þetta. Fundurinn hjá EJS varð hálf endaslepptur því ég þurfti að komast aftur til Edinborgar til að ná ársfagnaði Scotland IS sem er svipað og SUT. Það var ráðstefna milli fjögur og sex og síðan kvöldverður. Ég var aðeins seinn fyrir en svo heppinn að fá sæti hjá Brendan Waters frá Hillington, og um kvöldið var á á borðinu hjá Tom Ogilvy, sem er yfirmaður hans. Sessunautur minn var einn stjórnarmanna Hillington setursins og var gaman að spjalla. Á ráðstefnuhlutanum var skemmtileg umræða um “next 10 big things” og síðan í kvöldverðinum voru afhent verðlaun til háskólanema í upplýsingatækni.og gaman að sjá hvað þetta hvetur. Ég var svo samferða Darran og Bill frá Metis og náðum við síðustu lest til Glasgow. Ég gisti á Carlton George, sem er næsta hús við lestarstöðina, svo ég var snöggur í rúmið. Föstudagurinn var svo ferðadagur og þar sem Benzinn var í viðgerð, tók ég rútuna í bæinn, sótti bílinn, leit við hjá tengdó og endaði í Álfkonuhvarfinu og lagði mig, enda full ástæða til eftir langa útilegu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home