Sigrún fær verðlaun

Á ráðstefnu stjórnenda Glitnis í Turnberry í Skotlandi í þarsíðustu viku voru nokkrir starfsmenn verðlaunaðir sem höfðu þótt standa sig sérstaklega vel í starfi. Það kom mér ekki á óvart að Sigrún var í þessum hópi því hún hefur verið að skila frábæru starfi í bankanum. Hún fékk verðlaunagrip sem á er letrað Glitnir Award 2007, Individual Achievement. Mér var að berast meðfylgjandi mynd frá verðlaunaafhendingunni þar sem Sigrún er með Lárusi Welding, forstjóra Glitnis. Til hamingju Sigrún.


1 Comments:
Mamma getur allt sem hún ætlar sér :)
Skrifa ummæli
<< Home