Í betra veðri
Ég var mættur til Alicante seint á fimmtudagskvöld, því erindið var að skoða hús til að leigja í lengri tíma. Málið er að ég var búinn að lofa sjálfum mér að ég myndi eiga notalega stund í betra veðri þegar doktorsvörninni væri lokið. Þar með gæti ég látið drauminn rætast að hlaupa, æfa og ekki hvað síst spila golf, hvers ég hef verið að sækja kennslu í. Ég fann húsið og fæ það afhent þann 6. nóvember n.k. og ætla að vera á staðnum að taka á móti. Ég hef mikið verið spurður, af hverju eigið hús og af hverju þarna. Svarið er einfalt, a.m.k. hvað mig varðar, því ég ferðast mjög mikið, eins og sjá má á skrifum mínum hér, og þess vegna þoli ég ekki hótel lengur sem stað til að hvílast á. Síðan er önnur afleiðing af öllu ferðastússinu mínu að ég hef gaman af ferðalögum en leiðist að ferðast. Þess vegna valdi ég stað þar sem er beint flug frá Íslandi og Skotlandi, og það tekur hálftíma að keyra frá flugvellinum. Húsið nr. 7 á Isla Espalmador uppfyllir þessi skilyrði nokkuð vel. Það voru blikur á lofti á Spáni þegar ég kom og búið að vera hörku rigning. Mér finnst allt í lagi að vera í rigningu þegar það er 20 stiga hiti !!! Síðan birti til og sól á laugardeginum. Ég hafði hitt Símon endurskoðanda og Guðrúnu konu hans, foreldra hennar Bryndísar, sem var í dansinum, í vélinni og þau sögðu mér endilega að líta við hjá þeim sem ég gerði á laugardeginum. Það var rigning og skýjað á sunnudag og því yndislegt að sitja úti í hlýjunni undir skjóli frá rigningunni og lesa og dotta. Á mánudeginum var kominn tími til að halda til Bretlands en ekki laust við trega að slíta sig frá sólinni og tuttugu stiga hitanum sem þá var kominn.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home