fimmtudagur, október 25, 2007

BÚINN að verja

Það var stór dagur hjá mér í dag þegar ég fór í doktorsvörnina mína. Þetta er stundin sem búið er að stefna á frá upphafi náms sem var í september 2003. Ég vaknaði snemma og þar sem ég ætlaði að hafa hugann við efnið, hafði ég slökkt á símanum mínum og las ekki póst. Við John hittumst í morgunmat og þá vildi svo skemmtilega til að Liza Castro Christensen frá Árósum var í skólanum að kenna svo við settumst saman þrjú og spjölluðum. Ég keyrði síðan inn í Henley að sækja Pat og síðan settist ég inn í dagstofuna í skólanum þar sem doktorsliðið var að koma sér fyrir. Ég spjallaði við Veronicu sem sér um doktorsskrifstofuna og fékk frekari upplýsingar um framhaldið. Þá var komið að John að fara í sína vörn svo ég fór að lesa aðeins yfir.

Við Pat fórum snemma í mat og vorum að klára þegar John kom aftur og hafði staðist með minni háttar athugasemdum. Við Pat fórum í smá göngutúr um skólalóðina og svo var mál að halda til varnar. Mér til mikils léttis var externalinn minn (Bob Garvey) ekki slaufugæinn sem ég hafði fundið á netinu heldur hinn almennilegasti maður. Internalinn var John Burgoyne, sem var meðhöfundur að líkaninu sem ég notaði í rannsókninni minni. Ég byrjaði á fimm mínútna yfirferð yfir ritgerðina mína og svo hófst ballið og ekki með neinni smá spurningu. What is your philosophical stance as a resercher in your thesis? Mér var öllum lokið. Hvað átti maðurinn við? Þetta var ekkert sem stóð í ritgerðinni. Ég hafði sagt við Pat fyrir vörnina að ég ætlaði að vera hógvær og lítillátur og láta lítið fyrir mér fara, en Pat hló bara og sagði mér að hann tryði því tæplega og hvatti mig til að vera ég. Með þessa spurningu á fanginu var ekkert að gera annað en að fara í fluggírinn og taka á loft. Síðan voru þetta rétt tæpir tvær tímar af svona spurningum og rökræðum. Af hverju fannst mér þetta og af hverju fannst mér hitt? Var ég pósitífisti eða ekki! Lítið sem ekkert um textann, öfugt við það sem ég hafði undirbúið. Mér til mikils léttis var ég kallaður inn eftir að þeir höfðu rökrætt í tíu mínútur þar sem mér var tjáð að ég hefði náð með minni háttar viðbótum (minor amendments). Mér þótti líka vænt um þegar externalinn sagðist hafa haft ánægju af því að lesa ritgerðina mína og að hann hefði skemmt sér vel (entertaining) í vörninni !!! Segið svo að fimmaurabrandarar virki ekki :-)

4 Comments:

At fimmtudagur, 25 október, 2007, Blogger Anna C said...

TIL HAMINGJU!!!!!

Knús,
stolta dóttirin

 
At föstudagur, 26 október, 2007, Blogger EggertC said...

Takk Anna mín.

 
At þriðjudagur, 30 október, 2007, Anonymous Nafnlaus said...

Í anda færslunnar mun ég ansa þessari spurningu hér:
What is my philosophical stance as a commenter on this blog?
Being a firm believer that the egg succeeded the chicken, I still must say that I like the pig the best. The reason being its considerably more generous contribution, than the egg, to my breakfast. Building on that as a foundation for my comment I must say that I have taken the philosophical stance of the "five penny joke". That approach is further supported by distinguished doctor in the field of knowledge management. Ergo sum, the approach widely applicable and does in my opinion not require any amendments what so ever.
Til hamingju með áfangann!

 
At þriðjudagur, 30 október, 2007, Blogger EggertC said...

Takk fyrir kveðjuna Helgi minn. Þessi spurning verður sígild og þegar þú hugar að henni næst er rétt að þú svarir einnig hvort þú sért pósitívisti eða constructionisti því það hefur áhrif á brandarann :-)

 

Skrifa ummæli

<< Home