Sókn er besta vörnin
Jæja, þá var ég kominn á mánudeginum til Gatwick flugvallar á leið til Henley. Ég leigði bíl og nú var ég með nýja Tom Tom-inn minn sem vísaði mér veg. Fyrsta mál á dagskrá var að keyra í skráðan endursöluaðila ThinkPad tölva og kaupa mér straumbreyti fyrir tölvuna mína því fyrir ótrúlegan klaufaskap, gleymdi ég mínum heima. Þess vegna var ekkert bloggað um helgina eða talað á Skype. Ég náði rétt fyrir fimm að heimilisfangi fyrirtækisins en þar var ekkert að finna svo ég hélt til Henley, þar sem ég fór á netið, barinn og svo snemma í rúmið því ég þurfti að leysa úr straumbreytismálum. Ég vaknaði snemma í morgun, þriðjudag, og eftir staðgóðan, hjartaþéttandi, morgunverð byrjaði ég að hringja í allar áttir. Ég komst að því að það var hvergi straumbreyti að fá. Síðasta úrræðið var að tala við tölvudeildina í skólanum og haldiði að þeir hafi ekki átt eitt stykki til að lána mér. Frábært !!! Síðan heyrði ég í Veronicu sem sér um vörnina og hún sagði mér að mín yrði eftir hádegi á fimmtudag. Síðan að John Hawkins, félagi minn í hóp 19, yrði í vörn fyrir hádegi, þannig að ég verð í góðum félagsskap næstu daga.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home