Dagskráin framundan
Ég kom hingað til Spánar síðasta þriðjudag (núna er mánudagur) og fer á föstudag London að hitta krakkana og fara á tónleika. Á mánudeginum 19. fer ég til Genf þar sem ég tala á ráðstefnu sem er skipulögð af WIPO og EBAN (World Intellectual Property Office og European Business Angels) fyrir hönd LINC (skoskra viðskiptaengla) og sæki námsstefnu viðskiptaenglanna daginn eftir og verð kominn aftur til Spánar á miðvikudeginum og þá verður Ásdís komin í heimsókn. Við ætlum að vinna aðeins í ritgerðinni hennar. Ég fer síðan aftur 25. til Ljubliana í Slóveníu á aðra WÍPO ráðstefnu með sama efni og kem aftur til Spánar 28. Ég fer síðan 7. eða 8. des til Glasgow og ætla að heimsækja John Hawkins 8. og koma heim til Íslands að kvöldi 9. Síðan förum við í fjölskyldufrí þann 14. des og komum aftur á annan í jólum. Það er gaman að vera til.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home