mánudagur, nóvember 12, 2007

Hvað ætlarðu að gera einn á Spáni ???

Þegar ég hef verið lýsa draumum mínum um hús á Spáni hef ég fengið tvær spurningar; af hverju hús á Spáni og hvað ætlarðu að gera þar einn? Það er til svara að ég ferðast mikið og er að jafnaði rúmlega 110 daga á ári á ferðalagi síðustu þrjú árin. Þess vegna er ég ekki mikill hótelaðdáandi. Síðan eru það ferðalögin. Ég hef gaman af því að ferðast en líkar illa ferðalagið, hef nefnilega óbeit á tengiflugi og forðast það eins og ég get. Þegar kemur að valinu á Spáni er það til svara að ég skoðaði marga staði á netinu og þegar ég fann staði þar sem er skikkanleg veðrátta mestallt árið en vandamálið var að þeir voru annað hvort of langt í burtu eða ekki beinar flugsamgöngur við þá tvo staði sem ég þarf reglulega að heimsækja en það eru Reykjavík og Glasgow. Hér í Alicante er a.m.k. vikulegt flug til Keflavíkur og oftar á sumrin. Það er daglegt flug til Glasgow og mörg flug á dag til London. Þannig að valið var einfalt.

Eftir að ég hætti að hafa daglega vinnuskyldi í fyrra hef ég engu að síður unnið mjög mikið en gert mér ljóst að ég hef tímabundið myndað mér þá skoðun að íslensk vetrarveðrátta sé mér ekki að skapi. Þess vegna langaði mig að eyða tíma eftir doktorsvörnina í betra veðri en jafnframt á stað sem ég gæti kallað heimili mitt. Meiningin er að koma skrokknum í form, spila golf og skrifa greinar upp úr doktorsritgerðinni minni. Þess vegna er ég kominn í hús hér á Spáni.

En svo ég víki að spurningunni um hvað ég ætla að gera hér einn, þá er ýmislegt til svara. Fyrst er það hvort ég er meira einn hér á Spáni en á Íslandi. Ég get með nokkuð gildum rökum haldið því fram að á því sé lítill sem enginn munur. Þegar ég lít á fjölskyldumynstrið mitt þá eru börnin mín orðin fullorðin, Ásdís og Anna í námi í útlöndum og Stefán á leið í nám um áramótin. Sigrún hefur heldur betur staðið sig vel með því að byrja á því að taka tvær mastersgráður og síðan að hella sér á fullt í starfsframa, nokkuð sem ég tel mig búinn að klára, en skil vel að hana langi til þess að eiga sinn feril. Hún hefur þegar náð frábærum árangri og var nýlega gerð að framkvæmdastjóra hjá Glitni. Það felur hins vegar í sér að hún vinnur afar mikið og er mikið erlendis. Ég er líka mikið erlendis vegna fjárfestinga minna, fyrirlestra og ráðstefna. Ég hitti hana því næstum jafn mikið erlendis og heima á Íslandi, þannig að með því að vera hér á Spáni finnst mér ég vera að hinkra eftir henni í betra veðri!!! Síðan er það hvað er að vera einn. Mér finnst ég ekkert meira einn hérna á Spáni (þegar internetið er komið). Ég er í miklum samskiptum við alla á netinu og með heimsóknum. Ég tala meira við börnin mín á netinu en þegar þau eru heima. Þótt ég sé ekki í níu til fimm vinnu hef ég engu að síður markað mér starfsvettvang að loknu námi og viðskiptaferli sem stjórnandi. Ég hef ákveðið að skipta starfi mínu í þrennt þar sem í fyrsta lagi starfa ég á Íslandi sem formaður samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og stjórnarformaður GoPro (Hugvit). Í öðru lagi starfa ég í Glasgow sem meðlimur í samtökum Skoskra viðskiptaengla og viðurkenndur samstarfsaðili Skoska meðfjárfestasjóðsins og er í stjórn fjögurra fyrirtækja og hluthafi í þremur (EJS UK, Formedix, Amivox og Metis Partners). Í þriðja lagi ætla ég á Spáni að sinna skriftum, eða akademísku hliðinni á mér sem felst í sérhæfingu minni í þekkingarverðmætum. Það liggja þegar fyrir verkefni eins og gerð námsefnis fyrir iðnfyrirtæki í þekkingarverðmætum og skrif fyrir ráðstefnum á árinu 2008, sem allavega verða tvær ef ekki fleiri og líklega kennsla í Háskólanum í Reykjavík að hausti 2008. Því er ég ekkert einn á Spáni. Fyrir utan heimsóknir þá næ ég ekkert að vera hér að ráði hvort eða er vegna þess hve dagskráin er ströng.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home