Gimli 50 ára
Ég er ekki vanur að tala mikið um Frímúrararegluna þar sem ég hef félagi í meira en tuttugu ár. Ég geri undantekningu núna þar sem stúkan mín varð fimmtug föstudaginn 2. nóvember og í tilefni þess var gefin út bók með sögu hennar. Það kom mér skemmtilega á óvart að ég var á nokkrum myndum í bókinni og eins var minnst á mig í einum kafla. Myndirnar voru flestar af mér í hópi embættismanna en ein alveg skelfileg mynd af mér í frímúraraferð í Danmörku. Þegar ég hef tækifæri til, þá ætla ég að skanna eitthvað af myndunum og setja hér inn. Síðan var minnst á mig í kaflanum um kaffifundi “heldri” bræðra en ég átti hugmyndina að þessum fundum árið 2000 þegar ég var formaður bræðranefndar stúkunnar. Þótti mér vænt um að þessa væri getið og ekki síður að þessum fundum hefur verið haldið áfram síðan. Annars var gaman að fara á afmælisfundinn því ég hef verið meira og minna í hléi frá því að ég hóf doktorsnámið. Þess vegna var ég að hitta marga eftir margra ára fjarveru.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home