Fluttur !!!
Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur. Á fimmtudeginum tékkaði ég snemma út og fór upp í hús til að þrífa og setja á rúmið mitt, sem reyndar er ótrúlega mjúkt og reyndist gott að sofa á. Ég fór aftur í Carrefour og keypti meira dót, því alltaf kom í ljós að eitthvað vantaði. Það var fleira sem vantaði því ekki var gervihnattasjónvarpið komið og kom loks á laugardeginum en verra var með internetið. Það kom indæll maður á föstudeginum og sagðist hafa ætlað að tengja internetið en það vantaði tengiskápinn fyrir húsaröðina sem ég tilheyri. Sorrý Stína. Veðrið var rysjótt þessa fyrstu daga svo allt í lagi að vera inni, nema á föstudeginum fór ég til Elche að ganga frá umboði vegna skráningar sem tók óratíma. Á laugardeginum byrjaði ég á því að fara út að skokka út að golfvellinum sem er rétt hjá mér. Ég var óttalega lélegur og þó þetta væru ekki nema fimm kílómetrar í heildina var ég búinn á eftir. Það var samt gaman að sjá völlinn og að fólkið sem var að spila var ekkert sérstakt í íþróttinni. Síðan fór ég til Alicante að hitta Martin Leyton, sem vann hjá SIAC, í Glasgow en var núna kominn til hugverkaverndunarstofnunar Evrópu sem er í Alicante. Ég stillti TomTominn á miðbæ Alicante og þegar ég sá höfnina á hægri hönd fór ég í fyrsta bílastæðahús sem ég sá. Við hittumst síðan við styttuna af kallinum í sjónum og fundum okkur veitingastað og fengum okkur síðbúinn hádegismat og spjölluðum í nokkra tíma. Frábært að hitta hann. Síðan var frábært að koma í húsið og byrja að horfa á einhverja af þeim 35 stöðvum sem ég hef úr að velja. Í gær, sunnudag var svo frábært veður, sól og 22 stiga hiti, svo ég freistaðist í sólbað og síðan á æfingasvæðið á golfvellinum. Ég endaði síðan í sófanum að horfa tennis. Frábært!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home