Aftur í eitís

Á laugardaginn var haustfagnaður hlaupahópsins í Laugum. Vikuna áður hafði ég fengið póst frá Elínu Reed sem sagði að hún væri hópstjóri í hópnum sem ég hafði verið settur í. Það átti að byrja klukkan 15:00 í einhverjum leik og áttu hóparnir að vera klæddir í eighties þema. Ég sendi á hópinn minn nokkrar vefsíður sem ég fann á netinu um eighties og síðan streymdu póstar og niðurstaðan að pantað var glansefni í Virku í buxur og ákveðið að vera í klipptum háskólabol að ofan. Hún Ásta í hópnum mínum stakk upp á þessu og var greinilegt að saumaskapurinn vafðist ekki fyrir henni. Þar sem Sigrún var í Kína var ég ekki góðum málum svo ég sendi henni póst og bað um hjálp. Hún brást vel við og rétt rúmlega 17 á fimmtudag var ég mættur heim til hennar í Kópavoginn og hún saumaði buxurnar á innan við hálftíma. Við mættum öll heima hjá Elínu í Hlíðunum klukkan tvö á laugardeginum og þar var búningurinn fullkomnaður. Ég var í fjólubláum glansbuxum og svartri háskólapeysu með afkliptum ermum sem breytt var í legghlífar. Ein í hópnum er förðunarfræðingur og eftir að hún hafði penslað mig í framan var ég heldur betur “gay” looking, fjólublár og “fallegur”. Þegar ég fæ myndirnar, set ég þær hérna en í bili á ég bara hópmyndina. Þegar komið var niður í Laugar, áttu hóparnir að hlaupa um hverfið og taka myndir af a.m.k. fjórum í hópnum við kirkjur, veitingastaði, hús númer sautján og ýmsar aðrar. Það var því ætt af stað og byrjað á pylsubarnum, Lauga-ási, Áskirkju og ansi skrautlegt að sjá hópana æða af stað. Minn hópur stóð sig frábærlega og náði mörgum frábærum myndum, en búningurinn var samt það sem allir voru sammála um að við hefðum slegið í gegn. Þar sem ég hljóp svona fjólublár um hverfið vonaði ég að ég þekkti ekki neinn en gat ekki annað en hlegið þegar ég var í myndatöku í bakaríinu í Glæsibæ, þá var Ari Viðar vinur minn þar. Ég var heldur betur klæddur öðruvísi heldur en þegar við hittumst kvöldið áður í kjölfötunum !!! Síðan var kallað á mig í Síðumúlanum og var þar kominn Ríkharður, badmintonfélagi minn, og að ég held, yfirmaður Helga Jean í Brimborg. Varð honum heldur betur skemmt.
Áður en haldið var frá Laugum kl. 18, fóru allir í sturtu og sparifötin og þurfti ég að nudda andlitið vel með sápunni áður en ég náði farðanum af, því engin var hreinsimjólkin. Við fórum í rútu í ökutúr um bæinn en enduðum í sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði þar sem við snæddum pottrétt og súkkulaðiköku í eftirrétt. Síðan voru myndir hópanna sýndar og útskýrðar við mikinn fögnuð viðstaddra. Kvöldið endaði síðan á því að búið var til pláss svo fólk gæti hrist sig við eitís tónlist og hélt síðan hver til síns heima.

3 Comments:
Snilldin ein!!!!
kv. Anna C
Cool outfit. Hvernig er annars þarna niðri á Spáni...ekkert netsamband?
Takk fyrir það. Bíð spenntur eftir að fá fleiri myndir.
Nei, það er ekkert net í húsinu ennþá svo ég þarf að vera á netkaffi.
Skrifa ummæli
<< Home