mánudagur, nóvember 12, 2007

Langt landnám

Eftir stutta veru á klakanum var komin tími til að halda til Spánar að láta drauminn rætast að fá mér hús og sinna skriftum og skrokkinum. Ég fór á sunnudaginn fyrir viku en stoppaði fyrst í Glasgow til að sinna fundum á mánudeginum. Icelandair eru búnir að breyta Glasgow fluginu þannig að það eru flogið 17:30 og var ég feginn því ég eyddi öllum laugardeginum í haustfagnað Laugaskokks og því aðeins á eftir áætlun. Það var eins og áður að ég hitti nokkra á vellinum sem ég þekkti. Fyrst var það Sigríður Olgeirs sem er núna forstjóri Humac, Apple söluaðili í Skandinavíu. Síðan Jón Magg, sem var hjá Hug. Þá Ársæl Hafsteinss hjá Landsbankanum og kom í ljós að hann á hús á sama svæði og ég ætla að búa á. Loks var það Sveinn Hannesar hjá Hugviti sem var á sömu leið og ég. Við tókum sal saman og sátum saman á leiðinni til Glasgow. Það var strangur mánudagurinn með fyrsta fundi kl. 10 með Stephen og Darren hjá Metis í nýja húsnæðinu þeirra, síðan Snorri hjá EJS kl. 12, þá stjórnarfundur í Formedix auk annarra mála kl. 14 og síðast David og Eddie frá Pentec, en það er 40 milljón punda sjóður sem fjárfestir í hugbúnaðarfyrirtækjum. Ég fór snemma í rúmið því ég þurfti að vakna kl. 5 til að ná flugi til Alicante kl. 7:25. Þegar ég kom út á völl skynjaði ég að það var eitthvað í gangi. Rangers áttu að spila í Barcelona og því voru ekkert nema fótboltafylgjur á vellinum. Þetta lið var þegar byrjað að drekka og það mikið. Í vélinni sem ég fór með voru ekki nema kannski 15 stykki en það heyrðist vel í þeim, og því gott að hafa góð heyrnartól og eitthvað til að hlusta á. Þegar ég kom til Alicante tók við biðröð eftir bílaleigubílnum. Mér gekk illa að fá TomTominn minn til að skilja hvert ég vildi fara og lagði því af stað og þegar færi gafst, fór ég í stæði og náði loks að finna Rojales. Þegar ég var á leiðinni hringdi Árni, sá sem sé um húsnæðið mitt, í mig og bað mig að koma strax í húsið því það væri smá uppákoma, án þess að ræða það nánar. Þegar ég kom í húsið kom í ljós að uppákoman var að húsgagnamennirnir höfðu borað gat á vatnsleiðslu þegar þeir voru að setja upp gluggatjaldafestingu. Það flæddi vel yfir rúmið mitt en sem betur fer var dýnan ennþá í plastinu og rúmbotninn blotnaði og þurfti að þorna. Síðan var grátlegt að sjá að allt sem ég hafði fengir loforð um að væri klárað 15 dögum fyrr þegar ég var á staðnum var ekki búið. Þetta er Spánn í hnotskurn. Það vilja allir vel, en ná ekki að klára á þeim tíma sem settur er. Það var eins gott að ég bókaði hótelherbergi á La Laguna því ekki gat ég flutt beint í húsið eins og ætlað var. Síðan var önnur keðjuverkun,sem var að Árni var á leið til Íslands daginn eftir og náði því ekki að þrífa húsið eins og um var samið og því endaði ég með skrúbbinn, en ekki fyrr en búið var að setja upp baðinnréttingarnar sem loksins kláraðist á miðvikudeginum. Meira að segja laugarmaðurinn kom og kláraði að tengja og láta renna í laugina, sem reyndar tekur 4 daga. Ég notaði því tímann til að fara í Carrefour að kaupa hreinsidótt og annað smálegt. Það veitti ekki af.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home