þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Langir dagar í Ljublana

Ég var lengi á leiðinni til Ljublana frá Alicante. Ég var lentur á Gatwick um hálf tvö og fór ekki í loftið fyrr en rétt fyrir níu um kvöldið. Ég flaug í lítilli þotu þar sem var þröngt og maturinn var slóvenskt samloka með ost og tómat sem skolað var niður með Cochta, sem er kóladrykkur heimamanna. Var eins og gospillurnar sem maður fékk í gamla daga. Flugið var á áætlun en svolítill hristingur á leiðinni inn í lendingu. Völlurinn er lítill og létt mál að komast í gegn þar sem beið mín leigubíll sem ég hafði góðu heilli pantað deginum áður og var bílstjórinn með blað með nafninu mínu stórum stöfun ”Slaessen” !!! Keyrslan niður á hótel Lev tók ekki nema rúmar fimmtán mínútur og keyrt á 140 km hraða. Hótelið er sagt 5 stjörnu og finnst mér það aðeins of en vel staðsett og huggulegt herbergi sem ég fékk. Ég var kominn í rúmið um eitt um nóttina og svaf bara vel. Eftir stuttan morgunmat á mánudag var haldið í verslunarráðið í Ljublana þar sem námskeiðið fór fram. Ég hitti þar Ralph Heinrich og Marco Marcini frá UNECE og WIPO en þeir voru að halda námskeiðið og hitti ég þá í Genf vikunni fyrr. Ég var með tvö innlegg á námskeiðinu en bæði á þriðjudeginum svo ég bara sat og hlustaði. Stefano Zambon frá Ferrara lenti í því að vera seinn sökum þess að tvær vélar sem hann átti að vera með voru yfirbókaðar og ein fór ekki af stað vegna þoku þannig að hann kom ekki fyrr en kl. 15. Fannst mér hans tvö innlegg, sem tekin voru í beit mjög fróðleg fyrir mig. Samt fannst mér nöturlegt að ekki voru nema sex manns eftir á námskeiðinu þegar þarna var komið. Mest voru 25 manns yfir daginn og næstum 30 sem höfðu skráð sig létu ekki sjá sig. Þegar deginum lauk um hálf sex, var haldið á hótelið og ég gekk síðan yfir á hótel Slon þar sem Ralph og Stefano voru og hittumst við fleiri og fórum á fiskistað til þess að borða fiskisúpu og ágætis grillaðan fisk, sem ég kannaðist ekki við. Staðurinn var í gamla bænum og gaman að fá tækifæri til þess að ganga aðeins um og sjá borgina, sem er nokkuð falleg. Við Stefano kvöddumst með virktum og ég var síðan komin í rúmið rétt um eitt aftur.

Ég svaf ekki vel og vaknaði hálf fimm og átti erfitt með að sofna aftur. Þetta var ekki gott því nú var komið að mínu innleggi. Mætingin var slök og ekki nema 15 manns þegar ég var með fyrra innleggið. Mér var ágætlega tekið en Slóvenarnir ekki spurulir eða miklir þátttakendur. Ég var síðan aftur eftir hádegi, næst síðastur og orðinn vanur í púltinu. Námskeiðinu var svo slitið og héldu hver til síns heima. Ég var svo slæptur eftir svefnleysið að ég afþakkaði að hitta útlendingana heldur lagði mig fram að kvöldmat og fékk mér lambamedalíur á hótelinu og er núna að fara að sofa til að vakna eldsnemma í fyrramálið því flugvélin fer kl. 7:00, en vélin til Alicante kl. 15 svo það verður aftur langur dagur á Gatwick.

1 Comments:

At miðvikudagur, 28 nóvember, 2007, Blogger Anna C said...

Austantjaldslöndin spyrja ekki mikla spurninga yfir höfuð, held það hafi e-'h að gera með sögu þess, þjóðfélagið í heild (skólarnir þeirra)... trust me, i know. Er í skóla með þeim ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home