Feðginadagar
Það var frábært að hitta Sigrúnu og börnin í London og gaman til þess að hugsa að við hittumst öll aftur um miðjan des til að ferðast saman á ný. Ekki þurfti ég að kveðja öll börnin því þegar Lundúnaferðinni lauk fór Ásdís á mánudeginum til Spánar í húsið, sem ég hef til afnota, og var þar ein í einn og hálfan sólarhring. Þegar ég kom til baka frá Genf, rétt eftir há
degi á miðvikudag, svaf hún sínu værasta því hún hafði vaknað snemma um morguninn til að skrifa og lagt sig svo. Merkileg tíðindi voru að það var búið að stela sólbekknum mínum um nóttina og bloggaði Ásdís sérstaklega um það. Það var ósköp notalegt að hafa Ásdísi hjá mér. Við spjölluðum mikið um ritgerðirnar og rannsóknirnar okkar og svo alls konar spádóma um framtíðina sem bíður okkar. Mér finnst alveg frábært hvað Ásdís er dugleg í náminu og hvað hún er búin að koma sér vel fyrir í Árósum. Við vorum dugleg að fara á veitingahús á hverjum degi og fá okkur að borða, sjálfsagt vegna þess að við þurftum alltaf að drífa okkur um fimmleytið á internetkaffið því það lokaði kl. sjö. Dagarnir, sem við vorum saman, voru fljótir að líða, sérstaklega þar sem ég var að s
tússa í að fá fína leðursófann minn, sem síðan passaði ekki og svo að halda ró minni þegar tvö loftljós splundruðust vegna hitaþennslu. Það er ekkert grín að koma sér fyrir í landi frestunar og misjafnra gæða. Í dag, sunnudag, var svo tíma okkar saman lokið. Ásdís fann flug til Köben á svipuðum tíma og ég til Gatwick og því náðum við að verða samferða út á flugvöll þar sem við settum og spjölluðum áður en ég kvaddi hana í flugið sitt og beið síðan eftir mínu. Ég er núna á Gatwick flugvelli að setja þessa árs met í bið á vellinum því það er rúmlega sex tíma bið eftir að fara í flugið til Ljubliana. Ég er á betri stofunni, en það er þriggja tíma hámark svo mér verður hent út klukkan fimm !!!


3 Comments:
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Takk fyrir ædislegan tima a Spani. Vonandi gengur ther vel i Ljubliana.
Takk sömuleiðis Ásdís mín. Það var frábært að fá þig í heimsókn. Það gekk bara vel í Ljublana.
Skrifa ummæli
<< Home