þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Syfjaður í Sviss - Fyrirlestur í Genf

Ég var heldur betur syfjaður þegar ég vaknaði hálf fimm og skellti mér í snögga sturtu áður en ég hélt niður í lobbý til að athuga með leigubílinn, sem var kominn og þvíllíkt rip-off því þetta var sérbíll og tók 45 pund fyrir að keyra mig út á City völlinn. Völlurinn var svo lokaður þegar ég kom en það var leyft að maður settist og sjoppan var opin. Ég tékkaði mig síðan inn um leið og hægt var og las blað þar til var kallað út í vél, sem var Swissair. Ég náði að sofa nær alla leiðina til Genf, sem bjargaði miklu. Í Genf ætlaði ég að taka pening út á kortið mitt en það gekk ekki, en sem betur fer var ég með evrur og skipti nægu til að geta tekið leigubíl á ráðstefnustaðinn. Ég var aðeins of seinn en ekkert sem skipti máli. Ég sá strax David Grahame frá LINC, sem borgaði ferðina fyrir mig. Ég átti ekki von á að þekkja fleiri en þarna var Jacques Van der Meer frá Evrópska Fjárfestingabankanum og Stefano Zambon frá Ferrara háskólanum, en ég hef hitt þá báða oft á þekkingarverðmætaráðstefnum. Þetta var heldur daufleg ráðstefna og hallærislegt að í hádeginu var farið í mötuneytið á staðnum og þurfti hver að borga fyrir sig. Minn fyrirlestur var kl. 16:00 og var í 20 mínútur. Ég reyndi að vera hress og öðruvísi og mér til mikillar ánægju þá sagði David mig hafa verið besta fyrirlesara dagsins, en það þurfti ekki mikið til að slá hina út!!! Stefano var með fyrirlestu á undan mér og talaði mjög fallega um PIP verkefnið sem ég var í svo við erum miklir vinir núna, enda verður hann líka í Slóveníu í næstu viku þar sem ég var beðinn um að flytja erindið mitt aftur.

Um kvöldið var svo hátíðarkvöldverður Evrópsku viðskiptaenglanna, en ráðstefna þeirra var verkefni þriðjudagsins. Hann var haldinn á veitingahúsi úti í miðri Rín, sem er skemmtilega innréttað. Þarna útbýtti ég nafnspjöldum eins og gotteríi og tók jafn mörg á móti. Síðan var fólki róterað skipulega svo það kynntist, og eignaðist ég fullt af vinum, sem hjálpaði á þriðjudeginum þegar kom að ráðstefnunni. Ég var samt feginn að komast loks á hótel Kipling og sofnað og svaf svo fast að ég rétt vaknaði við klukkuna á þriðjudagsmorgninum og þurfti virkilega að hugsa mig um hvar ég væri. Englaráðstefnan var mjög fróðleg og mikilvægt innlegg inn í pælingar mínar og flott að hafa þessi tengsl, þegar kemur að því að stofna íslensku samtökin í byrjun næsta árs. Ég var kominn snemma á hótelið eftir ráðstefnuna og settist við tölvuna og vann upp ýmis mál. Fór síðan út og fann ítalskan veitingastað, Scandale, sem var síður en svo skandall, þar sem ég fékk mér minestrone súpu og risotto, tölvaðist aðeins meira, hringdi á Skype og síðan aftur í svefn til að fljúga til Spánar á miðvikudeginum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home