mánudagur, desember 17, 2007

Gott veður og golf á Spáni

Það var löng biðin á Gatwick til að komast aftur til Spánar. Ég var svo snemma að ég gat ekki tékkað mig inn og það sem meira var, ég þurfti að taka lest yfir í annan terminal. Þar fór ég á Frankie og Bennies og fékk mér að borða og vann á tölvuna. Síðan var að farið á betri stofuna og beðið. Ég flaug með Monarch og átti góða ferð. Þar sem ég skilaði ekki bílaleigubílnum á meðan, þá fór ég beint í bílinn og keyrði heim í hús. Þegar þangað kom, var lífinu tekið með ró því það var von á Þórði mági mínum á föstudagskvöldinu. Ég gerðist félagi í Howards Gym og einkaþjálfarinn, hann Kelvin, sagði mér til og útbjó fyrir mig æfingaáætlun auk heilræða í mataræði. Veðrið hafði batnað mikið og nú var sól á daginn og rúmlega 20 stiga hiti. Ég glímdi við vini mína hjá Procomobel að fá skipt sófanum, sem var of stór, og síðan voru ýmis pappírsmál sem þurfti að klára..

Á föstudeginum sótt ég Þórð út á flugvöll en áður keyrði ég til Benidorm að hitta Styrmi, en hann var ásamt syni sínum í golfferð. Það var svolítið ævintýri að finna hótelið þeirra en þetta hafðist að lokum og við fundum lélega hamborgarabúllu þar sem vertinn talaði norsku til að setjast niður og spjalla. Ég keyrði síðan með Þórði á laugardeginum til Gróu, systur Hjördísar hans Ómars Kristjánss, en Þórður var með laufabrauð og pakka til hennar. Síðan keyrðum við á Finca golfvöllinn og bókuðum rástíma á mánudeginum. Á sunnudeginum hófst svo golftörn, þegar Jói kom. Við spiluðum Marquesa strax eftir hádegið. La Finca á mánudeginum. Las Ramblas með Kidda á þriðjudeginum og síðast Marquesa aftur á miðvikudeginum áður en við héldum allir heim á klakann. Tölfræðin mín var ágæt í golfinu, en nokkuð ljóst að ég á langt í land með að geta spila sómasamlega. Heimferðin var söguleg því Express vélarnar þola illa mótvind og þess vegna þurfti að lenda í Prestwick og taka eldsneyti. Þess vegna var þetta 7 tíma flug og ekki besta skapið þegar maður kom heim kl. sex að morgni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home