Í hengirúmi halla mér, tra la la la
Það var ekki laust við að frískleg röddin hennar Helenu Eyjólfsdóttur kæmi í hugann þar sem ég lá í móki í hengirúminu fyrir utan “kofann” okkar. Að vísu var hún á skíðum, en mér fannst stemmingin sú sama. Þá er þriðji dagurinn hér á Maldive á enda.
Við vöknuðum að vanda seint í morgun því tímamunurinn er okkur ekki hagstæður. Eftir morgunmatinn var lagt á ráðin með síðasta daginn okkar hér því við þurfum að tékka okkur út á hádegi, en förum ekki í loftið fyrr en hálf þrjú um nóttina. Það varð út að við verðum á staðnum fram til kl. 11 og verðum á sameiginlegu laugarsvæði og dúllum okkur eitthvað þar til við siglum frá eyjunni. Þetta er afmælisdagurinn hennar Önnu á fimmtudaginn en við verðum að fagna afmælinu þegar komið er til Dubai á einhvern hátt, þó að við verðum með afmælismatinn annað kvöld. Mæðgurnar áttu tíma í heilsulindinni, á misjöfnum tíma þó, svo við skiptum liði þannig að Sigrún og Ásdís fóru í heilsulindina en ég, Anna og Stefán fórum að leika okkur í badminton, borðtennis og pool-i þar til Anna þurfti að fara. Þá héldum við Stefán áfram, fyrst í pool-i, þar sem hann hafði heldur betur yfirhöndina og síðan í borðtennis þar sem ég náði að lokum að gjörsigra minn mann og var það aðeins hefnd fyrir slaka frammistöðu mína í tennisnum í gær. Síðan var farið í “kofann” og slakað á í góða veðrinu, sem var léttskýjað og sólin því oftast á bak við ský, sem gerði það að verkum að við gátum verið úti í allan dag á meðan það var bjart. Á morgun er svo snorkl á dagskrá og gaman að sjá hvernig það fer.


2 Comments:
takk fyrir jólakortið og skemmtið ykkur mjög vel þarna uti
Takk fyrir kveðjuna Helga mín. Gleðileg jól til ykkar og hafið það sem best yfir hátíðirnar. Við sjáumst svo í jólaboðinu.
Jólakveðja frá Dubai
Eggert
Skrifa ummæli
<< Home