Fuglinn í lauginni, hann .....
Aðstaðan okkar á Maldive er ótrúleg. Við erum í “strákofum” hlið við hlið og laug við húsið okkar Sigrúnar. Þetta er lítið samfélag hérna á eyjunni þar sem þetta eru bara svona hús í mismunandi útfærslum. Þetta er líka ansi lokað og verulega gert út á veskið manns.
Minnir svolítið á skemmtiferðaskipin sem við höfum ferðast á því ekki kemst maður neitt annað til að versla. Við erum spölkorn frá veitingastaðnum og íþróttaaðstöðunni, en maður hringir á golfbíl, sem tekur fimm farþega og maður er keyrður það sem maður vill. Við höfum okkar einkaströnd fyrir framan húsið og nákvæmlega ekkert fólk á ferð. Gærdagurinn fór í að læra á staðinn og í dag fórum við Stefán í tennis í hádeginu þar sem ég tapaði illilega, en við náðum heldur betur að svitna. Síðan fóru börnin í SPA (eins og sjá má á blogginu hennar Ásdísar) en ég lognaðist útaf í hengirúmi á ströndinni. Sem
betur fer er léttskýjað svo við þolum að vera úti í allan dag og núna (rétt fyrir sjö að kvöldi) er farið að rökkva og ég sit úti með tölvuna því að það er þráðlaust net hérna, þótt ég hafi ekki GSM samband vegna slakra reikisamninga Símans. Þar sem ég er hérna á bekknum trillar fugl að lauginni okkar til að drekka og fer síðan í þetta fína bað og snyrtir sig allan til. Ekki nóg með það, heldur röltir hann að dyragættinni til að athuga hvort Sigrún sé ekki örugglega sofandi!!! Mér finnst hann heldur djarfur og stend upp til að stugga við honum. Hann skilur fyrr en skellur og lætur sig hverfa. Það er komið að kveldi í Rehti Ra.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home