sunnudagur, desember 23, 2007

Dagleið til Dubai

Við sváfum út eftir afmælisveisluna hennar Önnu. Við söfnuðumst samt saman fyrir hádegið og sungum fyrir afmælisbarnið á afmælisdeginum, þótt veislan væri kvöldið áður. Við tékkuðum okkur út kl. 12 og vorum að leika okkur allan daginn við borðtennis, pool og aðra leiki svo tíminn leið hratt. Við fórum í sturtu í SPA inu um sex leytið og síðan á veitingastað að borða. Við fórum síðan í bátinn á miðnætti og sigldum í klukkutíma til að komast á flugvöllinn í Male, en þar sem klukkan var einum tíma á undan á Rehti Ra, þá vorum við komin á völlinn rétt eftir miðnætti. Male völlur er meira eins og Reykjavíkurflugvöllur heldur en alþjóðlegur flugvöllur svo það var lítið við að vera. Loks fengum við að fara út í vél og farið af stað hálf þrjú um nóttina. Það bjargaði miklu að það var skjár á hverju sæti og mikið úrval afþreyingarefnis. Ég náði að horfa á fyrstu 10 mínúturnar af Hairspray og svo var ég sofnaður. Við lentum rétt fyrir sex að morgni í Dubai. Áður en kom að vegabréfaskoðun var kominn maður frá hótelinu til að lóðsa okkur í gegnum hraðferð sem veitti ekki af því biðröðin var mikil. Síðan beint út í bíl sem keyrði okkur á Jumeirah Beach hótelið Þar var okkur vísað á Executive Lounge því herbergið okkar gaf þann möguleika. Þar fengum við okkur smá snarl og Anna og Sigrún hölluðu sér en við Stefán fórum á flakk og enduðum í keilu. Þegar við komum til baka voru herbergin klár, og við fengum tvö herbergi hlið við hlið og innangeng. Hreint frábært. Ég verð að segja eins og er að ég var ekki til stórræðanna þennan daginn og sofnaði eftir hádegið á meðan fjölskyldan hélt út í sólina.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home