Ótrúleg afmælisveisla
Ég var búinn að minnast á að við
ætluðum að halda upp á afmælið hennar Önnu kvöldið áður en við færum til Dubai, vegna þess hvernig tímasetningar voru við ferðalagið. Það eru ekki "bara" jólin sem við þurfum að hreyfa til að passi við ferðaplanið. Við pöntuðum einka grillveislu við “kofann” okkar og fengum heldur betur veislu í lagi. Það var lagt persneskt teppi á ströndina og púðar til að sitja á. Síðan var sett upp veisluborð og borð fyrir matinn, grill og kyndlar. Þetta var eins og í arabísku ævintýri, að sitja við veisluborð undir pálmunum við kyndlaljósið, ljúfa tónlist og stjörnubjartan himininn. Það voru flottir forréttir og síðan grillaður fiskur og kjöt. Toppurinn var svo þegar komið var með afmælisköku handa Önnu og spilað afmælislagið.
Við sungum fyrir Önnu og svo tóku reyndar mæðgurnar léttan Hógí Pógí í leiðinni þar sem rétta lagið var spilað, öllum til óblandinnar skemmtunar. Fjölskyldan átti ótrúleg kvöldstund saman. Ásdís tók fjölda mynda að vanda en það eru engar myndir sem ná stemmingunni þetta kvöld og við töluðum um að þetta hefði verið næstum óraunverulegt, eins og þetta væru leiktjöld í risastóru leikriti. Ásdís hafði orð á því að hún byggist við sviðsmönnunum þá og þegar til að taka saman :-)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home