Enn eitt ár á hraðferð
Þar sem klukkan sló tólf í gærkvöldi í rokinu, gamla árið kvatt og nýja árið sungið inn í sjónvarpinu, þá fannst mér þetta næsta óraunverulegt. Það var varla að maður hefði snúið sér hálfhring frá síðustu áramótum. Ég hef bloggað nýársblogg tvisvar áður og í báðum tilfellum var hraðinn og ferðalögin mín í fyrirrúmi. Sérstaklega fannst mér fyndið að lesa bloggið í hitteðfyrra, en þar segi ég "Ég var að telja það saman að ég fór 24 sinnum út á árinu 2005 og var samtals 142 daga erlendis eða næstum fimm mánuði. Ég fór á marga staða og hitti margt folk og átti ýmis erindi. Ég held að ég toppi þetta seint." Það tók ekki langan tíma að toppa þetta því ég var nærri þessu 2006 en sló metið 2007 en þá fór ég 25 sinnum frá Keflavík og var 145 daga erlendis. Ég sló líka metið í fjölda flugferða, en ég flaug 75 sinnum á síðasta ári sem er næstum eitt og hálft flug á viku. Ég vona að ég slái ekki þetta met í ár því nú er ég orðinn fullsaddur á öllum þessum ferðalögum
Það sem stendur samt upp úr á árinu er doktorsvörnin og lokin á doktorsnáminu. Þetta var langþráður áfangi og gefur mér svigrúm til að huga að öðrum hlutum. Þess vegna var húsið á Spáni vonandi sá staður þar sem ég get nýtt mér þetta nýja svigrúm til að huga að sjálfum mér, en ég hef ákveðið að það verði mitt næsta verkefni auk þess að vinna úr doktorsritgerðinni einhver skrif.
Þetta verður líka skemmtilegt ár fyrir börnin mín, þar sem Ásdís og Anna útskrifast úr sínu námi eins og ég í maí n.k. Síðan er Stefán að fara til náms í Wichita núna 8. janúar. Frábært hjá honum að standast ameríska GED prófið og komast inn í háskóla úti án þess að þurfa að klára stúdentsprófið hér heima. Síðan fyllir frúin fimmta tuginn og fróðlegt að sjá hvað hún gerir í tilefni dagsins í sumar.
Ég óska þeim sem þetta les, gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári. Látum draumana rætast !!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home