laugardagur, desember 29, 2007

Dagarnir í Dubai

Dubai er merkilegur staður. Þarna er gott veður. Við vorum á fimm stjörnu hóteli, rétt við hliðina á sjö stjörnu hótelinu, seglinu, sem gerir staðinn þekktan. Þarna eru ekkert nema byggingaframkvæmdir og maðurinn sem tók á móti okkur á flugvellinum sagði að þarna á svæðinu hefði ekkert verið nema sandurinn fyrir átta árum. Dubai menn gera allt stærst og best að eigin sögn. Það er merkilegt að hlusta á leiðsögumennina segja með miklu stolti frá öllu þessu stóra og mikla sem ýmist er komið eða þá á leiðinni. Þeir eiga t.d. hæsta hús í heimi og það er hannað þannig að hægt er að hækka það ef einhverjum öðrum verður það á að byggja hærra hús. Í kringlunni sem er 10 mín frá hótelinu okkar er inni skíðasvæði, þar stærsta hingað til, en það verður byggt ennþá stærra á næstu þremur árum. Í kringlunum eru öll heimsins vörumerki og enska töluð næst arabískunni. Samt er maður óþyrmilega minntur á stjórnarhættina þegar allt þagnar og kallað er til bæna, eða þegar maður er að velja einhverja síðu á netinu sem er stjórnvöldum ekki þóknanleg og allt er lok og læs. Engu að síður eru Dubai menn duglegir að að byggja upp þjóðfélag sem ekki treystir á olíu og tala þeir sérstaklega um hagvöxt án olíu (NOEG-Non Oil Economic Growth) sem er 9-11 prósent á ári, sem er ekki amalegt. Það er því mikil hagsæld í furstadæminu.

Það breytti því ekki að við höfðum það stórkostlega gott á Jumeirah Beach hótelinu. Öll þjónusta og aðstaða til fyrirmyndar. Við feðgarnir gátum stundað tennis og það var heill vatnsleikjagarður áfastur hótelinu sem krakkarnir gátu skemmt sér í. Sundlaug og strönd og öll þjónusta rétt við dyrnar. Við gátum gert allt og keypt allt sem okkur hefði langað. Meira að segja verðlagið var tiltölulega hagstætt. Það var því með smá söknuði sem ég kvaddi Dubai á annan í jólum til að halda heim til Íslands. Samt vorum við öll sammála um að þetta væri orðið ágætt. Við höfðum upplifað eitt besta fjölskyldfríið og notið þess til hins ítrasta.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home