Aðfangadagskvöld í eyðimörkinni
Við vildum gera aðfangadagskvöld eftirminnilegt með einhverjum hætti.
Það var því ákveðið að fara í eftimiðdagsjeppaferð í eyðimörkina þar sem var spólað í sandinum og skoðaðir úlfaldar. Að síðustu var horft á sólarlagið og haldið að veitingastað í eyðimörkinni þar sem voru langþráð salerni og fordrykkur. Sigrún og börnin fóru í myndatökur á úlföldunum en ég passaði borðið sem Stefán hafði náð að tryggja okkur. Myrkrið skall hratt á okkur og við sátum á púðum og snæddum arabíska forrétti og síðan grillkjöt.
Við horfðum upp í himininn og sáum stjörnurnar og ímynduðum okkur að við værum að horfa á jólastjörnuna. Síðan var komið að skemmtiatriðum kvöldsins sem var magadansmey sem síðan tók upp viðstadda og þær systur, Ásdís og Anna, létu ekki sitt eftir liggja. Anna vakti það mikla athygli að magadansmærin tók hana sérstaklega fyrir og þær dönsuðu saman. Það var svo gaman að heyra frá konu einni sem kom til Önnu, þar sem við vorum að kaupa myndir af dansinum, sem hrósaði Önnu mikið fyrir dansinn.
Svo var allt búið og keyrt í klukkutíma heim á hótel eftir að það var búið að bæta lofti í dekkin á jeppanum. Þegar var komið heim á hótel var komið að hringja til Íslands og óska fjölskyldunni gleðilegra jóla, því klukkan er auðvitað nokkuð á undan í Dubai svo við vorum búin með kvölddagskrána þegar jólin gengu í garð á Íslandi. Þetta hafði verið sérstakur dagur og við vorum öll sammála um að þessi jól yrðu okkur eftirminnileg.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home