Kominn heim - og orðinn veikur !!!
Það var langur dagur á annan í jólum þegar við hófum heimferðina frá Dubai. Við vöknuðum kl. fimm að íslenskum tíma og vorum komin í flug kl. tíu. Síðan var lent kl. fimm í London og farið af stað til Íslands kl. níu og lent að miðnætti. Við vorum svo komin í rúmið rétt fyrir tvö.
Við höfðum ákveðið að fresta aðfangadegi til 27. og þess vegna vaknaði ég
upp úr níu til að keyra Sigrúnu í vinnuna og fara að versla "jólamatinn" Ég var því mættur í Nóatún rétt rúmlega tíu og keypti þessa fínu svínasteik og hangilæri. Ég fór í badminton í hádeginu og leið ekki vel, en taldi það bara vera ferðaþreytu. Ég var svo kominn heim fyrir þrjú og þá hófst eldamennskan á fullu og stóð alveg til sjö þegar við náðum að byrja borðhaldið. Maturinn tókst framar vonum en mér leið ekki vel. Ég borðaði því bara eina tartalettu og smá svínakjöt og svo auðvitað spruðið, sem ég hef fyrir mig því engin annar vill.
Ég vaknaði um nóttina með brjóstsviða dauðans, það rann af mér svitinn og ég var að drepast úr hausverk. Ég tók panodil og náði að leggjast aftur en vaknaði 3:05 við það að ég þurfti að kasta upp. Ég æddi fram á gang, en þar stóð Sigrún full klædd með íþróttatöskuna sína í hendinni. Ég var svo veikur að ég áttaði mig ekki á þessum fáránlegu aðstæðum, en spurði mína frú hvað hún væri að gera þarna klukkan þrjú að nóttu og hljóp svo inn á baðherbergi til að kasta upp. Seinna kom í ljós að Sigrún var með klukkuna sína ennþá á Dubai tíma og var vöknuð í morgunleikfimina og fannst ekkert skrýtið hvað nætursvefninn hafði verið skammur. Hún var meira að segja búin að senda vinnufélaganum sem ætlaði með henni í leikfimina SMS um að hún væri tilbúin.
Ég er búinn að vera meira og minna meðvitundarlaus síðan og er fyrst að komast til rænu núna á laugardagsmorgninum, enda eins gott því jólaboð fjölskyldunnar er í kvöld hjá Ástu.
Við höfðum ákveðið að fresta aðfangadegi til 27. og þess vegna vaknaði ég
upp úr níu til að keyra Sigrúnu í vinnuna og fara að versla "jólamatinn" Ég var því mættur í Nóatún rétt rúmlega tíu og keypti þessa fínu svínasteik og hangilæri. Ég fór í badminton í hádeginu og leið ekki vel, en taldi það bara vera ferðaþreytu. Ég var svo kominn heim fyrir þrjú og þá hófst eldamennskan á fullu og stóð alveg til sjö þegar við náðum að byrja borðhaldið. Maturinn tókst framar vonum en mér leið ekki vel. Ég borðaði því bara eina tartalettu og smá svínakjöt og svo auðvitað spruðið, sem ég hef fyrir mig því engin annar vill.Ég vaknaði um nóttina með brjóstsviða dauðans, það rann af mér svitinn og ég var að drepast úr hausverk. Ég tók panodil og náði að leggjast aftur en vaknaði 3:05 við það að ég þurfti að kasta upp. Ég æddi fram á gang, en þar stóð Sigrún full klædd með íþróttatöskuna sína í hendinni. Ég var svo veikur að ég áttaði mig ekki á þessum fáránlegu aðstæðum, en spurði mína frú hvað hún væri að gera þarna klukkan þrjú að nóttu og hljóp svo inn á baðherbergi til að kasta upp. Seinna kom í ljós að Sigrún var með klukkuna sína ennþá á Dubai tíma og var vöknuð í morgunleikfimina og fannst ekkert skrýtið hvað nætursvefninn hafði verið skammur. Hún var meira að segja búin að senda vinnufélaganum sem ætlaði með henni í leikfimina SMS um að hún væri tilbúin.
Ég er búinn að vera meira og minna meðvitundarlaus síðan og er fyrst að komast til rænu núna á laugardagsmorgninum, enda eins gott því jólaboð fjölskyldunnar er í kvöld hjá Ástu.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home