þriðjudagur, janúar 15, 2008

Útkall í umbreytingu

Ég hef verið hluthafi í EJS UK í bráðum fjögur ár og hefur gengið á ýmsu í rekstrinum á þessu fyrirtæki. Ég hef svo sem ekki verið virkur í fyrirtækinu en það varð breyting á því um áramótin þegar ég varð starfandi stjórnarformaður. Það eru miklar breytingar framundan þar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins hefur sagt upp störfum og það hafa verið verulegar þrengingar í rekstrinum. Þess vegna var það að tillögu Stephens félaga míns hjá Metis að ég myndi skipta mér meira af rekstrinum og vera á staðnum að meðaltali þrjá daga í viku næstu 100 daga. Þess vegna er ég kominn til Glasgow til að gera hvað ég get til að koma fyrirtækinu til lífs á ný. Ég bý núna í hótelíbúð sem ég fann rétt hjá aðal brautarstöðinni og er bara fín, sérstaklega þegar haft er í huga að ég er að borga 47 pund á nóttina. Fyrsti dagurinn minn í EJS var í gær og gekk vonum framar því ég var ekki bjartsýnn fyrirfram. Ég er búinn að fá þá aðila sem ég þarf með mér til að vera a.m.k. samvinnuþýðir og svo er að sjá hvað kemur út úr því. Markmiðið hjá mér er að klára að semja nýja rekstraráætlun, ráða nýjan framkvæmdastjóra og ganga frá fækkun starfsfólks, ekki seinna en á þriðjudag í næstu viku svo ég geti skotist á fimmtudeginum til Spánar að líta eftir bústaðnum mínum þar (sem reyndar gengur ekki sbr. næstu færslu). Þannig verð ég ekki alveg á staðnum hérna því ég fer til London á föstudag að hitta Sigrúnu og síðan verðum við að ferðast í þrjár vikur frá 29. janúar til 17. febrúar. Það verður því engin ládeyða hjá mér á næstunni, enda ekki von miðað við forsöguna. Dagurinn í gær var engin undantekning því ég var í EJS til að ganga hálf sex og síðan að funda með Stephen og Darran til sjö og þegar ég var búinn að versla mér í matinn og kominn aftur í íbúðina var klukkan að verða hálf átta. Þess vegna var lítill vilji til að fara í ræktina enda mikið að gerast hjá öðrum fjölskyldumeðlimum og þess vegna fór tími í Skype og MSN til að fylgjast með. Þessi tækni er frábær.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home