Krydd í helgina
Ég var spenntur að komast til London að hitta Sigrúnu, en við hjónin munum líklega hittast meira erlendis en á Íslandi næstu vikurnar svo það þarf að nýta tækifærin þegar þau gefast. Í London hitti ég Sigrúnu og hluta af danshópnum til að fara á Kryddpíutónleika í O2. Er skemmst frá því að segja að hópurinn skemmti sér stórkostlega og ég náði að sanna mig í barþjónustu á hæsta stigi. Það var líka gaman að Áslaug og Róbert komu líka svo það var frábært að hitta þau áður en við förum í heimsókn til þeirra í Suður Afríku. Kryddstúlkurnar höfðu unnið heimavinnuna sína og skemmtu höllinni vel. Á laugardeginum var verslað og hvílt sig og hópurinn skipti síðan liði þar sem sumir fóru í leikhús en við vorum sex saman sem fórum á Gaucho, þar sem bestu steikurnar í London eru framreiddar. Þar vildi svo skemmtilega til að ég hitt Hafstein, fyrrum starfsmann minn í markaðsmálum hjá Tölvumiðlun. Hann er núna kominn í góða stöðu hjá Danól/Ölgerðinni og gaman að sjá hvað hann hefur náð að koma sér áfram. Hann var meira að segja á næsta borði. Heimurinn er lítill ekki satt!!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home