sunnudagur, janúar 20, 2008

Fyrsta vinnuvikan

Fyrsta vinnuvikan í Glasgow var fljót að líða, sérstaklega þar sem ég fór til London á föstudaginn. Þetta urðu á endanum endalausir fundir og meira að segja stjórnarfundur í Formedix á þriðjudeginum þar sem ég lagði fram skýrslu um reksturinn og lagði til sérstakan vinnufund stjórnar í febrúar þar sem tekið væri á rekstrar og fjárhagsmarkmiðum ársins þannig að ekki þyrfti að leita eftir frekara fjármagni. Hjá EJS tókst að setja saman rekstraráætlun fyrir árið og ræða stjórnun félagsins. Það eru hins vegar erfiðar samningaviðræðum framundar við tilvonandi framkvæmdastjóra og hlakka ég ekki til. Það góða er að ég náði að fara þrisvar í ræktina í síðustu viku og brenna einhverjum hitaeiningum. Vonandi tekst mér að halda því áfram. Það sem gleður einnig aðgangurinn að ræktinni er innifalinn í leigunni hjá mér svo ég er að fá alla kosti Radisson á þriðjungi verðsins.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home