Fyrsti þáttur leikritsins að baki
Þá er ég búinn með fyrsta áfanga umsnúningsins hjá EJS UK. Frá því að ég kom á mánudaginn í síðustu viku, hef ég náð að ráða nýjan framkvæmdastjóra, fara í gegnum rekstraráætlun og ákveða nýjar forsendur í tekjum og kostnaði, auk þess að setja í gang uppsagnarferil fyrir þann starfsmann sem þarf að segja upp. Það verður fróðlegt að sjá hverju fram vindur. En síðan var lokahnykkurinn í gær þegar haldinn var starfsmannafundur þar sem ég kynnti breytingar á starfmannahaldi og stjórnun félagins þar sem ég mun taka að mér hlutverk fjármálastjóra næstu 100 daga. Ég klykkti út með því að segja að breytingar væru eðilegt ástand í þeim iðnaði sem við störfuðum. Við þyrftum því bæði frá persónulegu og fagmannlegu sjónarhorni að vera tilbúin að horfast í augu við breytingar og nota þær á jákvæðan hátt. Áður en ég hleypti fyrrverandi og nýjum framkvæmdastjóra að, þá sagðist ég hafa kynnst sérstöku tungumáli til að útskýra breytingar og vildi því gefa starfsmönnunum vínflösku og ost að gjöf til að útskýra þetta frekar. Þetta var lítil flaska ásamt bókinni ”Hver tók ostinn minn?”. Ég sagði augljóst að komast í vínið en það þyrfti að leita að ostinum í bókinni !!! Ég gat ekki betur séð en að þetta uppátæki mitt vekti nokkra kátínu hjá starfsmönnum


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home