Fyrstu dagar í Delhi
Fyrstu dagarnir sem við vorum í Delhi voru fljótir að líða. Borgin kom mér á margan hátt á óvart. Það var íslenskt sumarveður, kalt og 6-14 stiga hiti. Borgin er öll einhvern veginn sixtís, skítug og gamaldags. Ekkert nema endalaust prang og betl á götum, þannig að maður hætti sér ekki langt. Fyrst vorum við á hóteli sem heitir Oberoi, mjög gott hótel með frábærri líkamsræktaraðstöðu, spa, gufu og innilaug. Það er svo sem saga að segja frá því þegar við komum til Delhi, því við vorum að lenda rétt eftir hádegi og rugluð af þreytu og tímamismun. Flugstöðin var hrikalega gamaldags og hallærisleg og klukkutíma biðröð í vegabréfaskoðun. Það var eins og ekkert hefði breyst frá nýlendutímanum. Þegar við komum á hótelið beið okkar fínt herbergi og við sofnuðum. Ég vorkenndi Sigrúnu að vakna klukkutíma seinna til að byrja fundahöld, og hallaði mér áfram. Ég var síðan að berjast við tímamuninn um nóttina og sofnaði seint og svaf frameftir á þriðjudeginum. Eftir að hafa unnið aðeins í tölvunni á meðan Sigrún var að stússa, fór ég í ræktina og síðan fórum við Sigrún á veitingastað sem heitir Bukhara og er mjög vinsæll. Maður byrjaði á að setja á sig risastóran smekk, það var borið fram risa-nanbrauð og síðan lambakjöt og rækjur og sterkar sósur með. Maður gat fengið hnífapör en flestir borðuðu með puttunum. Mjög góður matur og góð stemming. Á miðvikudeginum var pakkað og haldið yfir á Imperial hótelið. Ekki voru það góð skipti. Herbergið var svo sem sæmilegt en á hótelinu angaði allt af einhverri liljulykt sem ég er með ofnæmi fyrir og fékk ég hálsbólgu og stíflað nef í hvelli. Nú kom sér vel að hafa tekið sterana með. Síðan tók steininn úr um nóttina því við vorum nálægt einhverri starfsemi í hótelinu þar sem menn djöfluðust alla nóttina þannig að við sváfum varla blund fyrr en í blá morgunsárið. Þess vegna var reynt að sofa frameftir svo við værum með meðvitund. Við ætluðum í smá göngutúr út fyrir hótelið þegar mann bar að og seldi okkur þá hugmynd að fara með honum í litlum þríhjólaleigubíl (ótrúleg fyrirbæri) á markað. Það var ótrúleg reynsla og ekkert annað að segja en við höfum náð tengslum við umhverfið og hina innfæddu. Við náðum síðan að fara í skoðunarferð í bíl um borgina á fimmtudeginum og sjá helstu kennileiti. Síðan tók við önnur svefnlaus nótt en í þetta skiptið þurfi að vakna hálf sjö því við áttum flug til Mumbai, sem er aftur á móti önnur færsla.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home