föstudagur, febrúar 01, 2008

Slitinn strengur

Það vakti fljótt athygli mína hér í Indlandi hvað allt internet var hægt. Kenndi ég um lélegum infrastrúktúr en hugsaði jafnframt til þess að það væri mikill BPO (business process outsourcing) iðnaður hérna og þeir hlytu að þurfa bandvídd. Þetta skýrðist allt þegar ég las í blaðinu hérna að það hefði farið í sundur sæstrengur við Alexandríu í Egyptalandi og þess vegna væri þessi heimshluti aðeins með 30% af venjulegri bandvídd. Þess vegna þarf ég mikla þolinmæði við internetið og góðan tíma. Þess vegna gæti bloggið gengið hægt og ég reyni ekki einu sinni að hlaða inn myndum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home