Heilög kýr í Mumbai
Mumbai var mun skárri en Delhi. Þarna voru greinilega meiri peningar og betra veður. Við gistum á hóteli við strandgötu sem var breið og vel gangfær án þess að maður væri umsetinn betlurum. Meira að segja flugvöllurinn var flottari en í Delhi og mér leið eins og ég hefði komist upp um flokk. Í Mumbai var farið vítt og breitt að skoða alls konar hótel og veislusali og þar sem var keyrt á milli staða var þetta ein alls herjar skoðunarferð. Við Sigrún ræddum að við sáum aldrei hvar “venjulega” fólkið bjó. Við sáum bara hjalla og hreysi. Það var sama sagan eins og í Delhi. Það var samt gaman að sjá þetta allt saman og ýmislegt broslegt sem kom upp á. Það vakti sérstaka kátínu okkar að sjá belju eina tölta eftir einni aðalgötunni og þótti það auðvitað hið eðlilegasta mál, mitt í annríki dagsins, en mönnunum sem sátu við samningaborðið með opið út á götu, varð örugglega ekki um sel þegar beljan vatt sér inn á skrifstofuna til þeirra og át blöðin sem þeir voru að vinna með. Samt stugguðu þeir vinalega við henni og héldu svo áfram eins og ekkert væri. Þetta er eitthvað sem maður sér ekki í henni Reykjavík. Við fórum svo til baka til Delhi á sunnudeginum því nú var komið að kvöldverðinum með forsetanum á miðvikudag.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home