Delhi kláruð
Við vorum aftur á Imperial hótelinu en í þetta sinn fengum við skárra herbergi og það var að minnsta kosti engin hávaði á nóttunni eins og í fyrra skiptið. Á mánudeginum var keyrt til Agra að sjá Taj Mahal. Við vorum sótt kl. 7 og var bíllinn ekki kræsilegur. Það var farið að sækja nýjan bíl sem var aðeins stærri en það voru ekki festingar fyrir öryggisbeltin svo það voru ræstir út starfsmenn til að laga það. Ekki var það gott fyrir góða skapið. Loks komumst við af stað og við tók næstum fjögurra tíma keyrsla til Agra. Það var gaman að sjá það sem fyrir augu bar. Þegar kom til Agra þá fórum við fyrst í Taj Mahal og það verður að segjast að þetta er eitthvað sem maður þarf að sjá. Við skoðuðum líka virki þarna og að lokum fórum við á verkstæði þar sem við sáum hvernig marmarinn er skreyttur. Var ekki laust við að maður tæki ofan fyrir öllum þeim fjölda sem hafði þurft til að skreyta grafhýsið. Við borðuðum á Hilton hótelinu á staðnum og gott að komast í eitthvað hreint og hollt. Næstu daga tók ég því rólega þar sem Sigrún var að vinna með samstarfsfólki sínu úr bankanum við undirbúning á fundum og fleiru. Síðan var miðvikudagurinn kominn og um kvöldið var hátíðarkvöldverður þar sem forsetinn okkar og fjármála og orkumálaráðherra Indlands voru samankomnir auk annarra gesta. Ég var á borði með konu frá forsetaskrifstofunni og síðan annarri frá HÍ. Við spjölluðum heilmikið eins og Íslendinga er siður við mannamót sem þessi. Það var gaman að hlusta á forsetann okkar tala, því hann hafði greinilega enga minnimáttarkennd gagnvart Indverjunum og sagði okkur Íslendinga hafa margt að kenna þeim á sviði orku og fiskveiðimála. Var góður rómur gerður að máli hans. Indverski ráðherrann svaraði skemmtilega og þar sem hann var nýkominn úr Íslandsheimsókn var honum hugleikið hvernig við hitum húsin okkar og framleiðum raforku. Þannig tókst þessi kvöldverður hið besta og allir ánægðir. Við Sigrún tókum til við að pakka því það þurfti að vakna hálf fjögur til að fara út á flugvöll.


1 Comments:
Vá, bara matarboð með forsetanum., stendur þig vel í því að networka...
kveðja frá DK
Skrifa ummæli
<< Home