Allir á völlinn
Ferðalagið frá Cape Town var strembið. Að íslenskum tíma lagði ég af stað út á flugvöll kl. 15:30 á sunnudegi og var kominn á skrifstofuna hjá EJS í Glasgow kl. 13:30 daginn eftir. Við Sigrún náðum að sofa svolítið í vélinni en þetta er aldrei alvöru svefn í flugvél. Það tóku við annasamir dagar, bæði hjá EJS og Formedix svo það var lítið andrými fyrir afþreyingu. Þess vegna tók ég fegins hendi boði á leik Celtic og Barcelona í Evrópudeildinni í gærkvöldi. Það var auðvitað smá stress að vera búinn að vinna en þetta hafðist allt og fórum við Snorri ásamt syni hans og vini á völlinn. Við vorum tímanlega og því lítið mál að komast að og á völlinn. Ég heyrði líka í Douglas, stjórnarformanni Formedix, en hann er með fastan “betri” stúkumiða. Hann spurði hvar ég væri á vellinum og sagðist geta fundið mig, en síðan fékk ég SMS þar sem hann sagði það ekki ganga eftir því hann fyndi ekki “betri” stúkuna mína. Ég svaraði því til að það ætti sér þá einföldu skýringu að ég væri úti í kuldanum. Eftir að hafa fengið okkur nokkuð svakalega pylsu og kók, þá hófst leikurinn og var skemmtilegur. Fimm mörk og Celtic náði að leiða tvisvar þótt þeir töpuðu leiknum. Það eina sem skyggði á var að það var svo skítkalt að ég var byrjaður að skjálfa svo mikið að ég þurfti að kaupa mér heitt te til að jafna metin. Ég fékk meira að segja að sjá Íslendinginn spila 7 síðustu mínúturnar hjá Barcelona svo það var allt í boði. Þetta var skemmtileg tilbreyting áður en haldið var heim í hótelíbúðina til að pakka fyrir heimferð til Íslands en það er orðið svolítið langt síðan ég hef vermt klakann.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home