fimmtudagur, febrúar 21, 2008

Sprungið framan hægra

Dagarnir í Pearl Valley voru fljótir að líða. Veðrið var svolítið skrýtið, rok og rigning og glampandi sól. Það er reyndar allt í lagi að vera úti í roki og rigningu þegar það er 28 stiga hiti! Við vorum dugleg á æfingasvæðinu og fengum kennslu að auki. Síðan var farið í bæina í kring og farið á veitingahús. Eitt þeirra var mjög sérstakt því það var á vínbúgarði og afar smekklega innréttað og aðstaðan öll hin besta auk þess sem við gátum setið úti og horft á sólarlagið áður en við fórum að borða. Afar tilkomumikið. Við fórum í eina dagsferð þar sem keyra var “niður” að Góðravonarhöfða. Ferðalagið gekk brösulega í byrjun því þegar við vorum að nálgast Cape Town á hraðbrautinni þá sprakk á framdekkinu og við út í kant. Nú voru góð ráð dýr svo ég vatt mér út og leit í skottið og fann varadekk sem ég skellti undir. Mér gekk samt ótrúlega illa að finna góðan stað fyrir tjakkinn svo hægt væri að lyfta bílnum svo það var örugglega fyndið að sjá mig á hnjánum á hraðbrautinni með alla bílana á fullri ferð í kringum mig. Síðan þurftum við að finna leið út á flugvöll til að skipta á bílum sem gekk að lokum. Þegar við vorum síðan komin af stað á þeim bíl, uppgötvaðist engispretta í aftursætinu sem vakti ekki mikla kátínu hjá húsfreyjunni og varð mikið uppistand í bílnum. Við breyttum aðeins ferðaáætluninni og fórum í Waterfront sem ég og Sigrún skoðuðum fyrsta daginn. Eftir að hafa fengið okkur að borða vorum við á leið aftur í bílinn, þá dritaði fugl á gestgjafann okkar og þá þótti okkur sem allt væri þá þrennt væri og nú hlyti að ganga betur. Það gekk eftir og við áttum góðan dag og skoðuðum syðstu oddana við Góðravonarhöfða og síðan bæi á leiðinni til baka þar sem við sáum mörgæsir. Mér þóttu þær heldur smáar greyin en virstust una sér ágætlega í hitanum. Við tókum myndir af okkur við skiltið á Góðrarvonarhöfða og því búið að tikka í boxið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home