Átta þúsund áhorf
Ég vissi svo sem að internetið er áhrifamikill miðill, en gerði mér ekki grein fyrir hvað það getur náð fljótt til margra. Ég hef verið að skoða netið sem markaðstæki og hef verið að vinna með tveimur fyrirtækjum sem ætla sér að ná árangri með markaðssetningu á netinu. Þess vegna fannst mér athyglisvert að sjá hvað margir höfðu horft á myndbandið sem Anna gerði með félögum sínum í skólanum. Hún hafði ásamt öðrum samið texta og lag og búið til myndband við lagið “Blond in disguise”. Þetta var auðvitað til gamans gert, en sannaði engu að síður að máttur netsins er mikill því þegar ég gáði síðast á teljarann á YouTube, þá voru skráð hvorki meira eða minna en rúmlega átta þúsund áhorf!!! Fylgið slóðinni til að sjá myndbandið http://www.youtube.com/watch?v=fgG3dW8mGzA


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home