Spilað á rauðum
Ég náði að fara tvo hringi á Pear Valley vellinum. Þetta er sagður einn af þremur bestu völlunum í Suður Afríku og hann er hannaður af Jack Nicklaus. Völlurinn er ekki sérstaklega langur en hann er mjög erfiður vegna vatns, sands og gróðurs. Það var auðvelt að týna boltun þarna og fannst mér stundum eins og ég gerði ekki annað en að opna boltapakka. Gestgjafi minn er aðeins betri en ég en samt á byrjunarstigi svo við ákváðum að spila á rauðum. Satt best að segja held ég að hitt hefði verið óðs manns æði því það munaði miklu á rauðum og bláum. Ég var farinn að slá sæmilega á æfingasvæðinu en þegar kom út á völlinn, þá var eins og ég yrði að gjalli. Ég slæsaði í drævunum eins og ég hefði aldrei gert annað og þegar ég reyndi að laga það, þá einfaldlega hitti ég ekki. Síðan voru járnin kapítuli útaf fyrir sig. Það hreinlega gekk ekkert með járnunum og þess vegna urðu höggin til að koma mér inn á green alltof mörg. Þegar ég fór seinni hringinn var eins og ég gengi í barndóm því ég eyddi mestum tíma í að moka í sandgryfjunum. Þetta var ótrúlegt. Ég mátti ekki sjá bunker án þess að slá í hann. Ég huggaði mig með því að núna hefði ég “mikla” reynslu af því að slá úr bunker. Ég hefði samt viljað taka þennan verklega þátt öðruvísi! Auðvitað man maður bara það sem fór úrskeiðis en það voru högg og högg sem ég var ánægður með. Það sem munaði mestu var kennslan þar sem mér var kennt að slaka á gripinu. Þetta held ég að muni skipta sköpum eftir því sem mér miðar áfram. Skorið var ekki upp á marga fiska en ég var samt á 122 og 118 á rauðum og gestgjafi minn yfirleitt 10 höggum undir mér. Hann fékk bæði fugl og par en ég mátti sætta mig við nokkar skolla sem besta árangur. Engu að síður var þetta frábær upplifum og forréttindi að fá að spila á svona fínum velli.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home