Einn á ferð
Eftir nokkra daga á Íslandi þar sem ég tók hvern fundinn á fætur öðrum var mál að halda til Glasgow á ný. Ég hafði sett Benzann á sölu á laugardeginum svo Sigrún skutlaði mér út á völl. Þar hitti ég fólk eins og venjulega, þ.á.m. Gústa Björns, sem ég hafði ekki séð í háa herrans tíð. Það var allt gott að frétta hjá honum og gaman að heyra að allt gengur vel. Það var skondið að heyra hann spyrja hvort Sigrún ætti systur, því hann hafði séð konu í ræktinni sem var svo lík Sigrúnu. Ég gat ekki annað en glott því Sigrún hafði sagt mér frá því að hún hafði reynt að heilsa honum í ræktinni en hann ekki svarað til baka. Ég var svo samferða Jim, hennar Birnu, í vélinni og náðum við aðeins að spjalla. Dvölin í Glasgow var aðeins öðruvísi í þetta sinn því Arnar frá Amivox ætlaði að búa með mér í íbúðinni í Oswald stræti. Hann lenti réttum hálftíma á eftir mér svo við urðum samferða frá flugvellinum. Hann var á Amivox skrifstofunni í Hillington alla dagana en ég var á fundi/námsstefnu hjá SIAC, þekkingarverðmætamiðstöðinni, á mánudeginum. Þar hitti ég Giovanni Schiuma, því hann var með námsstefnuhlutann. Ég einsetti mér enn og aftur að komast á ráðstefnuna hans í júní og ætlar hann að taka vel á móti mér. María Weir bauð mér svo með þeim út að borða eftir daginn ásamt Jane og var gaman að spjalla. Á þriðjudeginum var svo vinna í EJS UK og unnið í bókhaldinu sem virðist sem betur fer vera að lagast því við erum ennþá í plús eftir fyrstu tvo mánuðina og útlit fyrir að mars verði líka í lagi. Þar sem Sigrún var komin til London á þriðjudeginum, ákvað ég að fara og hitta hana á miðvikudeginum svo við gætum átt fimmtudaginn saman í London áður en haldið yrði til Egyptalands. Þegar ég kom til London á miðvikudagskvöldinu, þá kom í ljós að Sigrún var hundveik og rétt skrölti til að sinna vinnunni. Þess vegna var fimmtudagurinn rólegur og endaði með því að ég gaf Sigrúnu næði og tók lestina niður á Leicester Square og fékk mér að borða á Bella Pasta og fór í bíó að sjá Accidental husband. Síðan var haldið heim í háttinn því við áttum flug snemma til Frankfurt að hitta ferðafélagana.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home