fimmtudagur, apríl 10, 2008

Algjör engill

Á fimmtudaginn kom David Grahame, forstöðumaður skosku viðskiptaenglasamtakanna í heimsókn til Íslands. Hann var ræðumaður á Seed Forum ásamt Össuri Skarphéðinssyni. Ég sá um David á fimmtudeginum og fórum við í Bláa Lónið, bíltúr um borgina og loks í Perluna um kvöldið. Þetta var frábær dagur því þrátt fyrir kalda goluna, þá var sól og bjart og frábært útsýni í Perlunni um kvöldið. Föstudagurinn var svo á Seed Forum framyfir hádegi. David mæltist vel og ég hitti þarna marga í sprotabransanum og gaman að spjalla. Svo var það símafundur með Metis mönnum útaf EJS, fundur með Amivox til að fara yfir stöðun og loks fór ég á kynningu á nýrri stefnu GoPro, sem var kynnt starfsmönnum, en ég er stjórnar-formaður í því fyrirtæki. Þá var komið að móttku hjá breska sendiherranum, sem er nú að yfirgefa landið, síðan í Höfða, þar sem Vilhjálmur Þ. hélt leiðinlega ræðu og síðan endað á Óliver að spjalla mest við Ernu Bryndísi og Árna.

Það virðist enginn vilja taka almennilega að sér þetta viðskiptaenglahlutverk á Íslandi svo ég var hissa þegar það hringdi í mig blaðamaður og spurði mig út í viðskiptaenglahlutverkið og síðan mátti finna eftirfarandi texta í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins á miðvikudeginum.

„Það er nauðsynlegt að brúa bilið á milli Klaks, sem styður við nýsköpunar- og sprotafyrirtæki, og fagfjárfestingarsjóða. Fyrirtæki sem eru að komast af klakstigi þurfa að komast í hendurnar á góðu fólki sem er tilbúið til að veita þeim fjármagn og hjálpa til við reksturinn,“ segir dr. Eggert Claessen, en hann er í forsvari fyrir samtök viðskiptaengla, Iceland Angels, þeim fyrstu hér á landi. Að sögn Eggerts hefur lengi verið unnið að stofnun samtakanna en það var kynnt til sögunnar í kjölfar fjárfestingaþingsins Seed Forum sem fram fór á föstudag. Samtök sem þessi eru þekkt utan landsteinanna, sérstaklega í Bandaríkjunum og Skotlandi. Þau mynda fjársterkir einstaklingar, svokallaðir viðskiptaenglar, sem hafa áhuga á að fjárfesta í sprota og nýsköpunarfyrirtækjum, sem eru mislangt á veg kominn í vöruþróun sinni. Fjárfestarnir setjast gjarnan í stjórn fyrirtækjanna sem þeir fjárfesta í. Umgjörðin er að miklu leyti fengin frá LINC – viðskiptaenglaneti í Skotlandi – en David Grahame, framkvæmdastjóri þess, hélt kynningu á starfsemi þeirra á fjárfestaþingi Seed Forum á föstudag. Auk Grahames hélt Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tölu á þinginu um stuðning ríkisins við íslensk sprotafyrirtæki. - jab

Svo mörg voru þau orð !!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home