fimmtudagur, apríl 10, 2008

Hjónin á Spáni

Þar sem Sigrún hafði aldrei komin í húsið á Spáni sem ég er með á leigu, þá var ég spenntur að heyra hvað henni fyndist. Mér létti þegar henni leist vel á staðinn og vonandi náum við að nýta þetta eitthvað þó dagskráin mín þetta árið hafi heldur betur verið önnur en ég lagðu upp með. Við fengum besta veðrið fyrsta daginn en svo voru dagarnir bjartir, en kaldur vindur svo það var ekkert sérstakt sólbaðsveður. Við keyrðum því um og fórum t.d. tvisvar í IKEA, sem væri ekki í frásögu færandi nema að við snæddum þar sænskar kjötbollur og fannst alveg herramannsmatur. Meira að segja var Dajm tertusneið í eftirrétt. Í seinna skiptið var þetta líka spennandi því við festumst í umferð og það munaði ekki nema 14 mínútum að við misstum af bollunum.

Árni var búinn að mestu að hreinsa laugina svo hún er falleg á að líta, en samt svo köld að maður fer ekki ofan í. Það myndi koma ykkur á óvart hvað þar er mikið mál að halda einni sundlaug hreinni. Nettengingin var ekki ennþá komin og Telefonica menn komu meira að segja til að segja okkur það. Málið er að það er eitthvað rör í sundur sem verktakinn á að laga og verktakinn segir í lagi. Alltaf sama sagan, hvar sem maður er í heiminum. Eftir afar ánægjulega dvöl saman var flogið heim á miðvikudeginum. Flugið var ekki gott því þetta er alltof seint að kvöldinu og ekki bætti úr skák að þurfa að lenda í Prestwick til að taka eldsneyti. Þetta kórónaðist síðan með því að jeppinn hennar Sigrúnar var rafmagnslaus svo við þurftum að fá start. Klukkan var því að verða fimm þegar við komumst í rúmið. Ekki seinna að vænna því ég þurfti að vera klár í að sækja erlendan gest út á flugvöll um hádegisbilið á fimmtudeginum og fara í Bláa Lónið með meiru.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home