Solaris II
Lífið um borð í fljótabátnum er nokkuð staðlað. Morgunmatur kl. átta, hádegismatur kl. eitt og kvöldmatur kl. átta. Þess á milli er ýmist siglt eða farið í skoðunarferðir. Káetan okkar var bara þokkaleg enda væntingakvarðinn lágt stilltur. Ágætis pláss en dallurinn dálítið þreyttur þó hann eigi að heita mjög nýlegur. Það er gaman að sigla á Níl og horfa á náttúrufegurðina við bakkana, auk þess að upplifa Níl sem annasama hraðbraut fljótabáta sem eru að keppast upp og niður fljótið. Við fórum í gegnum skiptastiga við Edfu og athyglisvert að sjá alla bátana sem biðu. Við töldum rúmlega fjörutíu báta sem biðu eftir að komast. Á leiðinni til Asúan (Aswan) þá var staldrað við í Edfu og Hórusarhofið skoðað. Síðan var stíflan góða skoðuð þegar komið var til Aswan og bærinn að auki því við fórum í siglingu að Núbía þorpi og síðan í mosku og bæjarrölt sem endaði á bazar svo við erum aldeilis búin að tikka í boxin. Við slepptum flugferð snemma að morgni til að skoða hofið í Abu Sinbil og sáum ekki eftir því þótt ferðafélagar okkar hafi verið ánægðir með túrinn. Hálsbólgan lætur mig ekki í friði og Sigrún er engan veginn búin að ná sér. Þegar þetta er skrifað er verið að sigla til Kom Ombo og endum á morgun í Luxor sem verður síðan lokahnykkurinn á þessari Egyptalandsferð.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home