Aftur á Akureyri

Ég trúði því ekki að það væri komið ár síðan ég fór til Akureyrar að afhenda Hugvitsstyrkinn til tveggja háskólanema þegar ég fór mánudaginn 21. þ.m. Styrkirnir eru veittir í nafni Hugvits, sem er dótturfyrirtæki GoPro, þar sem ég er stjórnarformaður. Ég er formaður úthlutundanefndar sem sér um að velja þá nemendur sem fá styrkinn. Mér fannst nefnilega svo stutt síðan ég bloggaði um fyrstu ferðina. Sem fyrr sá Jón Alvar um undirbúning og Jón Víðir, starfsmaður Hugvits á Akureyri, tók á móti mér og sá um allt á staðnum. Þeir Jónar stóðu sig með stakri prýði og frábært að vinna með þeim. Mér fannst undirbúningur háskólamanna ekki góður, því þetta var haldið í horninu á bókasafninu og var borulegt, ekkert kynnt á staðnum svo það voru ekki nema 6 manns sem mættu og svo þótti mér slakt að það þurfti að rífa styrkþegana úr prófi til að taka við styrknum. Vonandi verður þetta betra á næsta ári. Samt sem áður fengum við mynd og smá umfjöllun í Mogganum, sem var auðvitað fínt.
Þar sem ég var kominn snemma um morguninn gafst tími til að skoða nýju skrifstofurnar hjá Hugvit á Akureyri, en það var verið að innrétta þær þegar ég kom í fyrra. Þetta er afar bjart og gott húsnæði og örugglega gott að vinna þarna. Mér finnst alltaf svo gaman að finna bæjartaktinn á Akureyri því það er allt svo rólegt þarna. Ef ekki væri fyrir veðurfarið, þá gæti ég hugsað mér að búa þarna. Mér var allavega bent á að það hefði nýverið verið auglýst staða deildarforseta í Háskólanum, en auðvitað var umsóknarfresturinn útrunninn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home