sunnudagur, apríl 20, 2008

Öðruvísi afmælisdagur

Stoppið var ekki langt heima því ég lenti á Íslandi á fimmtudags-morgni og fór til Glasgow á sunnudeginum. Þar sem tilboðstíminn er útrunnin á íbúðahótelinu sem ég hef gist á hinga til, þá endaði ég á Premier Inn á Argyle fyrir 61 pund á nóttina. Þetta var heldur þröng vist, en rúmið og koddinn í góðu lagi. Það var mikið að gera hjá EJS og mörg erfið mál í gangi. Ég get ekki lýst því hvað ég hlakka til þegar þessi kafli verður að baki. Þar sem Gústi kom á sunnudags-kvöldinu eftir að ég hafði legið í skápnum á Argyle í viku, gat ég réttlætt verðið á íbúðahótelinu í Oswald Street og var aldeilis feginn að komast þangað. Á miðvikudeginum áður en ég kom heim var afmælisdagurinn minn. Ég fékk símhringingar í byrjun dags frá Ásdísi og Önnu þar sem þær sungu fyrir mig afmælissönginn og Stefán toppaði sig með því að óska mér til hamingju með daginn á dönsku á MSNinu. Ljóst að hann hefur fengið innblástur eftir heimsóknina í Skandinavíufélagið í Wichita. Ég fékk fjölda kveðja og hringinga sem ég þakka kærlega fyrir. Ég hafði lofað starfsfólkinu hjá EJS að segja þeim frá stöðu mála áður en ég færi heim svo ég notaði tækifærið og fékk Macky til að kaupa fyrir mig súkkulaðiköku sem ég deildi með starfsfólkinu um leið og ég upplýsti um stöðuna. Í hádeginum fór ég í bæinn og keypti mér skyrtu og bindi því ég var boðinn í mat um kvöldið. Þá lá leiðin út í Kirkintillock að tala við hugsanlega samstarfsaðila og svo aftur niður í bæ til að henda af mér tölvunni og fara út á lestarstöð til að ná kortér í sex lestinni til Edinborgar því David hjá LINC hafði boðið mér í kvöldverð í The Scottish Malt Whiskey Society því hann var með móttöku fyrir amerískan viðskiptaengil sem var í heimsókn. Lestarferðin var algjört stress því hún sat föst í 40 mínútur fyrir utan Falkirk High og starði ég út í móann á meðan. Ég var því kortéri of seinn en var samt þríðji síðasti af þeim sjö sem þarna voru. Þetta var afar skemmtilegt kvöld og gaman að hlusta á John Huston, viðskiptaengilinn frá Ohio, segja frá sinni reynslu. Síðan var góður matur og viskísmökkun, sem reyndar heillaði mig ekki því mér finnst drykkurinn ekki góður. Í lok máltíðarinnar ætlaði ég að stela glæpnum af kananum og eigna mér boðið með því að þakka kærlega fyrir frábært afmælisboð mér til handa. En kaninn var ekki af baki dottinn og sagðist líka þurfa að láta vita af því að þetta væri líka afmælisdagurinn hans. Hverjar eru líkurnar á því að báðir útlendu englarnir ættu sama afmælisdag!!!

3 Comments:

At mánudagur, 21 apríl, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Það eru sirka 0,0027% líkur á því. Það er ekkert lýðræðislegt við að svo litlar líkur gangi eftir. En hafðu mína síðbúnu afmæliskveðju :)

 
At mánudagur, 21 apríl, 2008, Blogger EggertC said...

Þetta var það sem ég hélt, þ.e. að það væru litlar líkur á þessu. Takk kærlega fyrir afmæliskveðjuna.

 
At sunnudagur, 27 apríl, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 

Skrifa ummæli

<< Home