fimmtudagur, maí 01, 2008

Síðasta setan í Maryhill

Þetta er síðasti dagurinn minn hjá EJS í dag. Það var alltaf vitað að ég gæti ekki verið lengur í vinnu hérna. Þetta er þrátt fyrir að ekki sé enn búið að ganga endanlega frá sölu á fyrirtækinu, en þessar viðræður eru á lokastigi. Ég ætlaði að bjóða upp á Dominos pizzu í hádeginu í dag sem kveðjumáltíð en það fór dálítið öðruvísi. Domino’s opnar ekki fyrr en hálf fimm á virkum dögum hérna svo það þurfti að kaupa tilbúna skammta í einhverri sjoppunni þar sem var hálf pizza og franskar, og vantaði ekki fituna í skammtinn. Við náðum því að snæða saman og skola þessu niður með kóladrykkjum. Það er söknuður af þessu góða fólki sem hefur verið mér hliðhollt í að laga til í rekstrinum hérna.

Núna er ég á leiðinni út á flugvöll og flýg til Spánar í kvöld þar sem Sigrún og mamma hennar eru. Síðan fer ég til Danmerkur á þriðjudag því Ásdís er að útskrifast í Árósum á miðvikudag og síðan förum við þrjú til Köben þar sem við fljúgum til Vínar til að vera með Önnu í sinni útskrift. Sem sagt fjör á ferð og flugi.

3 Comments:

At mánudagur, 05 maí, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

Til lukku med stelpurnar, ædislegt ad thær seu loksins bunar ad na afanganum. Ef thid hafid tima tha getid thid bjallad i okkur thegar thid verdid i Køben, tekur bara 15 min ad keyra fra Radhuspladsen til okkar.
Solarkvedja fra Danmorku
Kolla, Morten, Jon & Siv

 
At sunnudagur, 11 maí, 2008, Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ ég veit ekki hvort sms skilið sér til ykkar í gær en innilega hamingjuóskir með önnu kær kv helga systir

 
At sunnudagur, 11 maí, 2008, Blogger EggertC said...

Takk fyrir góðar kveðjur. Það var ekki hægt að bæta við Danmerkurrúntinn að þessu sinni. Vonandi komumst við næst.

Þetta skilaði sé allt Helga mín. Takk fyrir kveðjurnar.

 

Skrifa ummæli

<< Home