Gott veður og golf
Síðasta vika var með rólegra móti enda ekkert að gerast í augnablikinu. Sigrún fór erlendis á þriðjudaginn svo við feðgarnir erum einir þessa dagana. Ég var svo heppinn að Gissur bauð mér í golfhring í Keili með Styrmi og Daða á miðvikudeginum. Ég hef ekki spilað þennan völl áður svo gott að bæta honum í safnið. Veðrið var hreint ótrúlegt þar sem það var sól og smá gola sem síðan lægði svo maður var á bolnum og var heitt. Mér er alltaf að ganga betur að hemja kylfurnar en mig vantar ennþá uppá sveifluna til þess að teig og brautarhögg séu boðleg. Gissur reiknaði út fyrir mig punktana sem ég náði á þessum hring og voru þeir 25 en ég þarf 36 hið minnsta til þess að byrja að lækka í forgjöf. Þess vegna hentaði mér betur fyrirkomulagið á föstudeginum þegar ég fór í golfmót Icelandair. Þar var spilað Scramble sem þýðir að tveir spila saman, einn góður og einn ekki góður. Báðir slá en betri boltinn valinn. Sá sem ég spilaði með var með var með 3 í forgjöf svo það átti að teljast merkilegt ef eitthvað af mínu spili væri notað. Eins og búast mátti við þá voru teig og brautarhöggin mín ekki nothæf en það gegndi öðru máli þegar kom að púttinu en á þessum átján holum var púttið mitt notað einum sex sinnum og síðan hentaði betur að nota innáhöggin mín þrisvar svo ég get ekki kvartað. Það var vel veitt í mótinu og veitingatjöld á völdum stöðum á vellinum. Mótið tók samt óratíma og lauk leik vel eftir miðnætti og þá átti að hefjast matur og verðlaunaafhending, sem ég sleppti þar sem ég ætlaði að hlaupa morguninn eftir.
Í góða veðrinu í vikunni var gaman á hlaupaæfingum og greinilegt að ég er að koma til baka þótt leiðin sé löng. Það var sprettæfing á mánudeginum í sólinni og teygjur í grasinu á eftir. Á þriðjudeginum fór ég og hitti Þóri og hlaupahópinn í Heiðmörk of fór rúma 10 á rólegu nótunum. Á fimmtudeginum voru fáir á æfingu og þess vegna þurfti ég að fylgja hópnum og þurfti heldur betur að auka hraðann. Ég var að bæta mig um tæpa mínútu á kílómeterinn á 10 km en ég þurfti samt aðeins að kasta mæðinni á endasprettinum á leiðinni til baka niður í Laugar og gekk tvær brekkur. Hlaupum vikunnar lauk svo í gær þar sem við Styrmir tókum 10 km frá Árbæjarlauginni en reyndar var Laugaskokkhópurinn þar líka en þau fóru í kringum Elliðavatnið sem okkur Styrrmi þótti of langt, auk þess sem við vorum strax orðnir á eftir meginhópnum. Ég var bara nokkuð sprækur og náði loksins að klára hringinn rétt undir klukkutímanum sem hafði ekki gerst í tilraunum mínum hingað til.
Helga Kristín frænka mín útskrifaðist sem stjórnsýslufræðingur á laugardeginum og bauð í flotta útskriftarveislu og síðan var Þórdís vinkona Sigrúnar með fimmtugsafmæli á sunnudeginum svo það var erfitt að varðveita hitaeiningaleysið en vonandi kemur það ekki mikið að sök


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home