mánudagur, maí 26, 2008

Aftur með Roger


Mér gafst tækifæri til að fara á tónleika á mánudaginn í O2 í London og sjá og hlýða á Roger Water, úr Pink Floyd. Þetta var skottúr, farið út á mánudagsmorgni og komið heim um kaffileytið á þriðjudeginum. Líkt og þegar kappinn kom til Íslands, þá var þetta óskastund. Ég var svo heppinn að Ásdís kom frá Danmörku og tveir fyrrum vinnufélagar mínir frá Íslandi auk vinkonu okkar hjóna sem skaut yfir okkur Ásdísi skjólshúsi. Við vorum því þéttur hópur sem skemmti sér vel. Ég var í essinu mínu því ég gat sungið með hverju einasta lagi og var stoltur af því að vera með röddina ennþá eftir kvöldið þótt hún væri hás. Roger var með svipað ef ekki sama prógram og á Íslandi. Það sem var betra var hljóðið og svo að þarna var hann með allt aukadótið s.s. fljúgandi svín og svo hreint frábært laser show þar sem litrófið úr pýramídanum frá Dark Side fékk aldeilis að njóta sín. Ég skemmti mér svo frábærlega að ég held að það verði erfitt að toppa þetta kvöld.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home