Frábær útskriftarveisla
Eftir að hafa fengið Ásdísi, Önnu og Lumi til landsins var haldin útskriftarveisla þann 3. júní í Turninum í Kópavogi. Dagsetningin var svo sem engin tilviljun því þetta er afmælisdagurinn hennar Ásdísar. Við buðum tæplega 200 manns og þar sem við buðum fleirum en færri, áttum við ekki von á góðum heimtum. Við sendum út boðskort með þemanu “Allt er þegar þrennt er” enda þreföld útskrift. Við fórum yfir listann daginn áður og reiknaðist til að það yrðu um 110-120 manns sem myndu mæta en raunin varð önnur. Það komu tæplega 150 manns og var ótrúlega gaman að sjá hvað margir sáu sér fært að mæta.Ég stóð við innganginn svo ég næði að heilsa öllum sem komu og svo tóku hin við þegar inn var komið. Við höfðum ákveðið að hafa sem minnsta formlega dagskrá svo fólk gæti spjallað og átt góða stund saman. Sigrún hafði orðið fyrir okkar hönd og talaði til Ásdísar og Önnu og afhenti þeim sérstakar uglustyttur til minningar um tímamótin sem við höfðum fengið Kidda í Tímadjásn til að útbúa fyrir okkur. Svo kom mér skemmtilega á óvart þegar hún talaði til mín og talaði um hvað doktorsnámið og maraþonhlaup væru svipuð hvað varðaði mikilvægi þess að þrauka og hafa úthald til að klára. Hún afhenti mér hreint frábæra gjöf sem er stytta af maraþonhlaupara sem er á síðustu metrunum þegar komið er í mark. Síðan var mér afhent gjöf frá tengdaforeldrum mínum og þótti mér sérstaklega vænt um að þau tóku bæði til máls, sem gerist nú líklega ekki oft. Síðar í veislunni tóku síðan vinkonur Ásdísar og Önnu til máls og töluðu afar fallega til þeirra. Mér fannst þetta takast alveg frábærlega vel og vera einhvern veginn allt svo mátulegt.

Það var yfirhlaðið gjafaborðið og heimilið okkar núna eins og vegleg blómabúð. Ég vil þakka öllum kærlega sem komu og hafið kæra þökk fyrir allar gjafirnar, blómin og góðar kveðjur. Þetta verður ógleymanleg stund sem við áttum með ykkur.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home