föstudagur, júlí 11, 2008

Rólegir dagar

Þetta eru búnir að vera rólegir dagar upp á síðkastið í góða veðrinu. Ég var boðaður í atvinnuviðtal daginn eftir að ég kom heim frá Ítalíu og síðan byrjaði ég að undirbúa mig fyrir afmælið hennar Sigrúnar. Ég talaði við Kidda gullsmið og hann ætlaði að smíða hálsmen og síðan fékk ég leyfi hjá Hálfdan til að fá golfsett frúarinnar lánað svo ég gæti látið börnin gefa Sigrúnu golfsett að auki í afmælisgjöf. Ekki nóg með það heldur bað ég Ásdísi að útbúa stutt vídeó með afmæliskveðju til mömmu sinnar og Önnu líka til að hafa í ræðunni minni í afmælinu. Anna gerði þetta öðruvísi og hljóðritaði lag við undirleik Julian Ruth, en þau hafa unnið saman að lagasmíðum. Ég hef notað tímann til að sinna vel hlaupahópnum og slá golfbolta. Er ég ekki frá því að ég hafi náð framförum í hvorutveggja. Það var sérstaklega gaman á laugardeginum að komast 22 km þótt ég þyrfti aðeins að ganga því nú finnst mér ég á kunnugri leið í hlaupunum.

Síðan er þessi vika búin að vera að snúast í kringum afmælið hennar Sigrúnar. Á mánudeginum var verið að sækja dót til að hafa í salnum og setja upp salinn. Á þriðjudeginum að útbúa smárétti og gera allt klárt fyrir afmælið sem var haldið með glans um kvöldið. Síðan tók við frágangur á miðvikudeginum. Ég fékk líka þau tíðindi að ég væri annar tveggja sem hefði komist í gegnum atvinnuviðtalið frá því vikunni áður og ætti að mæta á n.k. mánudag og vera með 20 mínútna kynningu á hugmyndum mínum um stefnumótun og starfsemi fyrirtækisins. Þetta þýddi að ég tók til hendinni í powerpointinu og er búinn að setja saman kynningu sem mér finnst vera í standi. Það verðum áhugavert að sjá hvernig mér verður tekið með boðskapinn

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home