Kominn með vinnu
Ég var búinn að minnast lítillega á að ég átti að mæta á mánudaginn í viðtal og síðan vera með kynningu hjá fyrirtæki sem ég hafði sótt um starf hjá. Viðtalið gekk ágætlega um morguninn og kynningin fyrir stjórn fannst mér líka ganga ágætlega. Þess vegna var ég glaður að heyra að ég væri boðaður í samningaviðræður á þriðjudeginum til að ræða kaup og kjör. Slíkir fundir eru alltaf erfiðir og sérstaklega núna því það er erfitt að réttlæta laun eins og ástandið er í þjóðfélaginu. Það bar svo sem ekki mikið á milli en samt nóg til þess að þetta stoppaði í stjórninni og ég þurfti að mæta aftur á miðvikudeginum áður en ég fór í flug þar sem tekist var á um síðustu atriðin og samningur undirritaður.
Hvað er svo starfið? Ég er orðinn framkvæmdastjóri Frumtaks. Frumtak er fjárfestingasjóður sem ætlað er að fjárfesta í sprota og nýsköpunarfyrirtækjum, eða eins og segir í fréttatilkynningu frá 28. maí, “Í upphafi ársfundar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins , sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík í morgun, tilkynnti Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, að náðst hefði samkomulag um stofnun Frumtaks, samlagssjóðs stóru bankanna þriggja, stærstu lífeyrissjóða landsins og Nýsköpunarsjóðs. Frumtak mun hafa a.m.k. 4,6 milljarða króna á næstu árum til fjárfestinga í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar. Sérstakt 1,5 milljarða króna framlag til Nýsköpunarsjóðs af tekjum ríkissjóðs vegna sölu Símans er stofninn í Frumtaki. Stóru bankarnir , Glitnir, Kaupþing banki og Landsbanki leggja fram 1,5 milljarð króna og sex af stærstu lífeyrissjóðum landsins leggja fram 1,6 milljarð króna. Sú tala gæti hækkað þar sem áskrift er ekki lokið. Í hinum vestræna heimi er mikil áhersla lögð á að örva nýsköpun með öllum tiltækum ráðum til þess að auka samkeppnishæfni og velferð þjóða. Þar er í auknum mæli horft á mikilvægi þess að auka framboð á áhættufé. Markmið Frumtaks er að byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta. Frumtaki er ætlað að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru komin af klakstigi og er áskilið að fyrir liggi ítarlegar viðskiptaáætlanir. Frumtaki er heimilt að fjárfesta erlendis að því marki sem nauðsynlegt er vegna útrásar eða markaðssóknar íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði, ekki síst þegar möguleiki er á sameiningu eða samruna við fyrirtæki í eigu Frumtaks.”
Ég vænti mikils af þessu starfi því þarna á ég að geta verið í essinu mínu og nýtt mér þá reynslu og sérþekkingu sem ég hef aflað mér í gegnum tíðina og sérstaklega síðustu árin. Ég er líka að sinna málefni sem ég hef bæði skilning og mikinn áhuga á.
Ég hef störf 15. ágúst n.k.


2 Comments:
Innilega til hamingju, ég og Lumi erum stolt af þér
Takk Anna mín.
Skrifa ummæli
<< Home