Glæsilegt afmæli
Það var ekki að því að spyrja að afmælið hennar Sigrúnar var ein allsherjar skemmtun. Fyrst kom Birna Einarsdóttir í pontu og hélt ræðu til Sigrúnar auk þess að dreifa sérstakri útgáfu af “Séð og heyrt”, sem var útbúið í tilefni dagsins. Hún kynnti síðan Jónsa á svið sem söng nýja útgáfu af laginu “Nína” með alveg frábærum texta, auk annarra laga. Þá var það danshópurinn með nýja útgáfu af “Inn og út um gluggann” sem var “Inn og út úr landinu”. Næst kom Jónína Ben og Detox hópurinn og var með söngatriði þar sem Ólafía Hrönn, leikkona, fór á kostum í að herma eftir Sigrúnu. Þá komu Óliver og Rebekka og dönsuðu tvo dansa.
Þá var það Dóa að tala fyrir hönd gömlu vinkvennana og bætti Þórdís Leifs aðeins við. Þá var það Einar Bárðason sem sagði nokkrar sögur af viðskiptum sínum við Sigrúnu og kynnti síðan Ingó og hljómsveit sem söng “Bahama” lagið og nokkra stuðsmelli og var dansað dátt. Að þessu loknu var komið los á boðið og fólk byrjað að tínast burt. Engu að síður vorum við feðgarnir eftir auk Eyjólfs og var það því okkar hlutverk að klára dagskrána. Eyjólfur sagði góða sögu og gaf Sigrúnu styttu af páfugli. Ég þurfti auðvitað að skera mína ræðu niður í næstum ekkert og var með nokkrar myndir af Sigrúnu í tölvunni sem ég talaði stuttlega með, en auðvitað var powerpointið að stríða mér svo þetta var svolítill barningur. Ég náði að koma vídeókveðjunni frá Ásdísi að og laginu frá Önnu. Ég ákvað svo að vera með grín og hafði undirbúið Agga, undirleikara kvöldsins, og hann náði snilldarlega að spila undir hjá mér meðan ég söng lagið “Viltu ennþá elska 49 ára gamlan mann” og gaf henni síðan hjarta mitt, sem reyndar var risastórt og skorið út.
Vakti þetta tiltæki mitt mikla kátínu. Síðan klykkti Stefán út með hörku ræðu til mömmu sinnar og afhenti golfsettið og afhjúpaði brjóstmynd af móður sinni, sem reyndar var grín því hálsmenið á gínunni var gjöfin. Þá var dagskráin loksins tæmd og frábær afmælisskemmtun að baki. Ekki að furða þótt Sigrún væri ánægð með daginn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home